Bakgrunnur nýs dómsmálaráðherra: Valdefla lögregluna og þrengja rétt til þungunarrofs

Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Jón Gunn­ars­son hefur verið skip­aður inn­an­rík­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Innan þings sem utan hefur Jón látið sig lög­reglu­mál, sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna og tálmun varða, meðal ann­ars.

Bakgrunnur nýs dómsmálaráðherra: Valdefla lögregluna og þrengja rétt til þungunarrofs
Jón Gunn­ars­son nýr inn­an­rík­is­ráð­herra Í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur Jón Gunn­ars­son skip­aður inn­an­rík­is­ráð­herra og tekur því við verk­efnum Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Jón Gunn­ars­son er nýr inn­an­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Sem þing­maður hefur Jón lagt fram frum­varp um að láta tálmun varða fimm ára fang­els­is­vist, kosið gegn frum­varpi um þung­un­ar­rof, talað fyrir vald­efl­ingu lög­regl­unnar og hefur líkt bús­á­halda­bylt­ing­unni við árás stuðn­ings­manna Trump á banda­ríska þing­húsið ásamt því að leggja það til að íslenska lög­reglan þurfi eitt­hvað meira en bara kylfur til að verj­ast hryðju­verkaógnum.

„Flóttinn frá umræð­unni birt­ist okkur síðan í því þegar fólk er farið að tala um þung­un­ar­rof í stað­inn fyrir fóst­ur­eyð­ingu. Hver eru mörkin milli þung­un­ar­rofs og fóst­ur­eyð­ingar, eða frá frumuklasa, eins og hátt­virtir Sam­fylk­ing­ar­þing­menn kjósa að kalla þetta?“ sagði Jón í ræðupúlti Alþingis þegar þung­un­ar­rofs frum­varpið var lagt fyrir þingið. 

Jón mun fara fyrir þeim mál­efna­sviðum sem áður heyrðu undir dóms­mála­ráð­herra, þá meðal ann­ars ákæru­valdi, dóm­stólum, lög­reglu og lög­gæslu, almanna­vörnum, vopna­málum, trú­málum og mál­efnum útlend­inga. Hann hefur þó verið tölu­vert fjar­ver­andi með­ferð þings­ins á þeim mála­flokkum sem munu nú heyra undir hann.

Jón hefur verið alþing­is­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan 2007 og var sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra 2017. 

Auka úrræði lögreglunnar til að tryggja öryggi borgara

Árið 2016 fjall­aði Stundin um hug­leið­ingu Jóns Gunn­ars­sonar sem hann birti á Facebook þar sem hann kall­aði eftir því að íslenska lög­reglan fengi aukin úrræði til þess að tryggja öryggi borg­ar­anna í kjöl­far hryðju­verka­árásar í Nice í Frakk­landi þar sem nítján tonna vöru­bíl var ekið inn í hóp af fólki sem fagn­aði þjóð­há­tíð­ar­degi frakka. 

Í þeim hug­leið­ingum velti hann fyrir sér hvernig hægt væri að tryggja öryggi íslenskra borg­ara ef slíkt myndi henda á Íslandi og hann og félagar hans væru því sam­mála að það kæmi að litlu gagni ef lög­reglu­menn hefðu ekki önnur úrræði en að „banka með kylfu á glugga fara­tækis mis­ynd­is­manna og biðja þá að hætta“.

„Við hljótum að þurfa að taka þessa umræðu og hugsa fyrir því hvernig við gerum lög­reglu­mönnum okkar kleift að mæta aðstæðum þeim sem við mögu­lega stöndum frammi fyrir.“

Líkti búsáhaldabyltingunni við árás á bandaríska þinghúsið

Í jan­úar síð­ast­liðnum skrif­aði Jón svo aðra hug­leið­ingu sem meðal ann­ars kom inn á van­mátt íslensku lög­regl­unnar. Þann pistil skrif­aði Jón vegna vopn­aðrar árásar stuðn­ings­manna Trump, frá­far­andi banda­ríkja­for­seta, á banda­ríska þing­húsið þar sem fjórir létu lífið og fjórtán lög­reglu­menn særð­ust. Atburð­ur­inn vakti hjá honum minn­ingar af „keim­líkum“ atburði sem hann sjálfur varð vitni að, bús­á­halda­bylt­ing­unni í kjöl­far banka­hruns­ins þar sem hann taldi lög­regl­una hafa verið „hárs­breidd frá því að tapa slagnum“.  

„Fyrir mig sem upp­lifði atburð­ina ver­andi í Alþing­is­hús­inu 2009 rifjar þetta upp óþægi­legar minn­ingar. Margt er svo keim­líkt með því sem nú átti sér stað og þess sem átti sér stað við Aust­ur­völl í árás á þing­húsið, vöggu lýð­ræðis í land­inu,“ segir í pistl­inum.

„Það er margt sem rifj­ast upp við þessa atburði vest­an­hafs og ekki hægt að segja annað en að mikil lík­indi séu með aðstæðum, þótt sá reg­in­munur sé á að okkur var blessunn­ar­lega hlíft við mann­falli.“

Hann sagði „ákveðna þing­menn“ hafa séð póli­tískt tæki­færi í „upp­lausn­inni sem skap­að­ist og ýttu undir ólg­una.“ Þá sagði Jón að ef ekki hefði verið fyrir skot­helt gler í gluggum Alþing­is­húss­ins hefði verið lík­legt að „æstur múgur hefði kom­ist inn í þingið. Þegar verst lét var lög­reglan ein­ungis hárs­breidd frá því að tapa þessum slag.“

Stjórnarsáttmálinn og Jón

Í nýja stjórn­ar­sátt­mála nýju rík­is­stjórn­ar­innar segir að lög­reglan og lög­reglu­yf­ir­völd þurfi að vera í stakk búin til að mæta þeim miklu sam­fé­lags­legu áskor­unum sem leiða af „skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, tækni­þróun, nýjum hug­bún­að­ar­lausnum, hnatt­væð­ingu og fjar­skipta-og netteng­ingum“. 

Stjórn­ar­sátt­máli um rík­is­stjórn­ar­sam­starfÍ nýjum sátt­mála um rík­is­stjórn­ar­sam­starf Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri­heyrf­ing­ar­innar-græns fram­boð kom sér­stak­lega fram að lög­reglu­yf­ir­völd þyrftu að vera í stakk búin til að takast á við skipu­lagða glæp­a­starfs­semi.

Jón gerði skipu­lag­aða glæp­a­starf­semi að umfjöll­un­ar­efni sínu í ræðu­stól Alþingis í lok maí 2019 eftir að skýrsla grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um sama efni kom út. Jón lagði sér­staka áherslu á að opin­bert bóta­kerfi, vinnu­miðlun, mót­töku­kerfi vegna flótta­fólks og hæl­is­leit­enda og marg­vís­leg félags­leg þjón­usta væri „skipu­lega mis­notuð“ af erlendum afbrota­mönnum.

Um starf­sem­ina hafði hann eft­ir­far­andi að segja: „Þetta er stóral­var­legt mál, virðu­legur for­seti, og við þessu verður að bregð­ast.“

Stuttu síðar eða þann 3. júní 2019 var Jón hins vegar fjar­ver­andi atkvæða­greiðslu um stofnun ráð­gjafa­stofnun inn­flytj­enda og síðar fjar­ver­andi með­ferð þings­ins á stöðu ein­stak­linga sem ekki eru mæltir á íslensku í sam­skiptum þeirra við stjórn­völd. Þá var hann einnig fjar­ver­andi í allri með­ferð þings­ins á skrán­ing­ar­skyldu félaga til almanna­heilla með starf­semi yfir landa­mæri sem lúta að því að styrkja varnir Íslands gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi og pen­inga­þvætti.

Þá segir einnig í stjórn­ar­sátt­mál­anum að end­ur­skoða þurfi bæði sjálf­stætt innra og ytra eft­ir­lit með störfum lög­reglu. Jón var fjar­ver­andi í með­ferð þings­ins og atkvæða­greiðslu á frum­varpi um sjálf­stætt eft­ir­lit með starf­semi og starfs­háttum lög­reglu.

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er áhersla lögð á að stuðla að „auknu aðgengi fanga að fjöl­breyttri menntun, virkni og stuðn­ingi að afplánun lok­inni“. Jón var hins vegar fjar­ver­andi með­ferð þings­ins á sam­fé­lags­þjón­ustu og reynslu­lausn fanga og með­ferð þess á betrun fanga. Þá var hann einnig fjar­ver­andi þegar þingið tók fyrir heild­ar­lög um þjóð­kirkj­una sem einnig fellur undir hans mál­efna­svið sem inn­an­rík­is­ráð­herra. 

Fjarvera Jóns á þingiJón var fjar­ver­andi með­ferð þings­ins á ýmsum málum er varða hans nýja mál­efna­svið.

Fangelsisvist fyrir tálmun

Hvað rétt­ar­far og refs­ingar varðar var Jón Gunn­ars­son einn þeirra sjö þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ásamt Brynjari Níels­syni, Ásmundi Frið­riks­syni, Bryndísi Har­alds­dóttur, Njáli Trausta Frið­berts­syni, Óla Birni Kárasyni og Páli Magn­ús­syni, sem fór fyrir frum­varpi þess efnis að heim­ila fimm ára fang­els­is­vist sem refs­ingu fyrir tálmun eða tak­mörkun á umgengni. „Tálmi for­eldri hinu for­eldr­inu eða öðrum sem eiga umgengn­is­rétt sam­kvæmt úrskurði, dómi, dómsátt for­eldra eða samn­ingi þeirra stað­festum af sýslu­manni að neyta umgengn­is­réttar, eða tak­marki hann, varðar það sektum eða fang­elsi allt að fimm árum. Brot gegn ákvæði þessu sætir aðeins opin­berri rann­sókn að und­an­geng­inni kæru barna­verndar til lög­reglu,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. 

Frumvarpið sætti mikilli gagnrýni

Frum­varpið sætti tölu­verðri gagn­rýni sem meðal ann­ars birt­ist í umsögnum við það. Stofn­anir og sam­tök á borð við Barna­heill, Barna­vernd­ar­stofa og Samtökum um kvenna­at­hvarf sögð­ust til að mynda ekki styðja frum­varpið vegna ýmissa ann­marka og fyrst og fremst þann er varð­aði fang­els­is­vist.

Auk þess skrif­uðu hátt í tvö hund­ruð konur bréf til þing­manna þar sem þeir voru hvattir til að taka afstöðu gegn frum­varp­inu. „Hið opin­bera tekur nú þegar þátt í kerf­is­lægu nið­ur­broti og ofbeldi með ákvarð­anatöku sinni og fremur mannréttinda­brot í skjóli valds. Hversu oft þarf þetta frum­varp sem vinnur augljóslega gegn hag allra barna og vinnur beint gegn þolendum ofbeldis, að vera lagt fram áður en þið áttið ykkur á alvar­leika málsins?“ sagði í yfir­lýs­ingu hóps­ins Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu en hóp­ur­inn sagði við­horfið sem frum­varpið end­ur­spegl­aði vera skað­legt konum og börnum þeirra. 

Hópurinn sagði hugs­un­ina á baki frum­varp­inu vera í mót­sögn við barna­vernd­ar­lög og Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Börn sem af ein­hverjum ástæðum njóta ekki umgengni við annað for­eldri sitt eru bersýnilega ekki betur sett með því að hinu for­eldr­inu sé varpað í fang­elsi. Þá er ríkið sjálft að svipta barnið réttinum á umgengni við það for­eldri sem afplánar refsi­vist og jafn­vel svipta barnið eina for­eldr­inu sem verndar það. Þessi hugsun er ekki bara órökrétt heldur er hún í hreinni mótsögn við alla hugsun að baki barnalögum, barna­vernd­arlögum og Barnasáttmála Sam­ein­uðu þjóðanna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Kaus gegn frumvarpi um þungunarrof

Þeir sömu þing­menn og lögðu fram frum­varp um refs­ingu við tálmun, að Bryndísi Har­alds­dóttur und­an­skil­inni, greiddu einnig atkvæði gegn þung­un­ar­rofi Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra en aðeins 18 manns greiddu atkvæði gegn því á meðan 40 þing­menn greiddu atkvæði með því. Þegar Jón gerði grein fyrir atkvæði sínu í pontu sagði hann að það væri merki um „mikla mál­efna­þurrð“ að þurfa að hlusta á „allt að því per­sónu­legar sví­virð­ingar ákveð­inna þing­manna í garð ann­arra þing­manna“ vegna mis­mun­andi skoð­ana varð­andi frum­varpið.

„Að væna menn um að bera ekki virð­ingu fyrir sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna þegar umræðan snýst um það hversu langt sá réttur á að ná, hversu lengi á hann að gilda. Hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra hefur gefið upp sína skoðun á því: Hann á að ná alla leið að fæð­ingu. Það er skoðun sem fólki er frjálst að hafa. Ég hef ekki þá skoðun. Hvenær á fóstrið rétt til lífs? Og flótt­inn frá umræð­unni birt­ist okkur síðan í því þegar fólk er farið að tala um þung­un­ar­rof í stað­inn fyrir fóst­ur­eyð­ingu. Hver eru mörkin milli þung­un­ar­rofs og fóst­ur­eyð­ingar, eða frá frumuklasa, eins og hátt­virtir Sam­fylk­ing­ar­þing­menn kjósa að kalla þetta? Hann er ansi mynd­ar­legur frumuklas­inn, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem situr þarna fyrir aftan mig í salnum,“ sagði Jón. 

Í við­tali við Rúv eftir að ráð­herrar nýrrar rík­is­stjórnar voru kynntir lýsti Jón bæði furðu og þakk­læti yfir því að hafa hreppt emb­ættið og að nýi stjórn­ar­sátt­mál­inn sé „fín mála­miðlun“ þrátt fyrir að hafa viljað sjá margt öðru­vísi í honum.

Í við­tali við fjöl­miðlaJón ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjalta­dóttur frétta­mann Rúv um nýju hlut­skipti sín.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta er hættulegasti ráðherrann og vonandi nær hann ekki að gera of mikið af sér áður en hann fer
    Hættulegasta ráðuneytið er umhverfis- og orkumála - þar situr ráðherra og á að taka á árekstrum milli umhverfisverndar og landnýtingar við orkuframleiðslu
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Jón er ekki góður maður.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár