Salan á Mílu: Heitir því að selja fjarskiptavinnviði Íslands ekki til „óviðunandi eigenda“

Spurn­ingar hafa vaknað um við­skipti Símans og franska fyr­ir­tæk­is­ins Ardian með fjar­skipta­inn­viða­fyr­ir­tækið Mílu. „Ég hef áhyggjur af þessu,“ segir fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Mílu, um mögu­legt eign­ar­hald ef Ardian selur aftur. „Ég sé ekki í fljóti bragði að þetta geti gengið upp,“ segir hann um fjár­fest­ing­una. Í við­skipt­unum verður til mik­ill sölu­hagn­aður fyrir hlut­hafa Símans sem eru aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir og lands­þekktir fjár­festar í fyr­ir­tæk­inu Stoðum, áður FL Group.

Salan á Mílu: Heitir því að selja fjarskiptavinnviði Íslands ekki til „óviðunandi eigenda“

„Þetta verð kemur nú ansi mikið á óvart. Mér finnst það hel­víti hátt […],“ segir Páll Á. Jónsson, fyrr­ver­andi for­stjóri fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Mílu. Síminn hefur und­ir­ritað samn­ing að selja Mílu til franska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Adrian fyrir 78 millj­arða króna. Við­skiptin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Áætlaður sölu­hagn­aður Símans í við­skipt­unum er 46 millj­arðar króna. Páll var fram­kvæmda­stjóri Mílu á árunum 2007 til 2014 og hafði hann þar á undan starfað hjá Símanum um ára­bil, meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stóri fjar­skipta­nets fyr­ir­tæk­is­ins.

Ardian er alþjóð­legt sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki sem er að stærstu leyti í eigu starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins. Félagið stýrir eignum í sjóðum  upp á 114 millj­arða doll­ara, eða tæp­lega 18.050 millj­arða íslenskra króna. Eigendur hlut­deild­ar­skír­teina sjóða Ardian eru fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðir, trygg­inga­fé­lög og fleiri slíkir stórir fjár­festar.

Ardian hefur á síð­ustu árum beint fjár­fest­ingum sjóða sinna til Norð­ur­land­anna og eru kaupin á Mílu sjöttu við­skiptin sem fyr­ir­tækið ræðst í þar á síð­ustu árum. Franska fyr­ir­tækið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Salan á Mílu

Hluthafarnir taka 56 milljarða úr Símanum eftir ríkisstyrki upp á 1,5 milljarða
FréttirSalan á Mílu

Hlut­haf­arnir taka 56 millj­arða úr Símanum eftir rík­is­styrki upp á 1,5 millj­arða

Hlut­hafar fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Símans lækk­uðu hlutafé félags­ins um rúm­lega 31 millj­arð króna síðla árs í fyrra í kjöl­far sölu Mílu og greiddu út til eig­enda sinna. Samtals munu hlut­hafar Símans hafa tekið 56 millj­arða út úr félag­inu á síð­ustu árum, ef áætl­anir þeirra ganga eftir. Síminn stærir sig á sama tíma á fram­leiðslu inn­lends sjón­varps­efnis sem er nið­ur­greitt með styrkjum frá íslenska rík­inu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár