Hjólahýsafólkið sem vildi kaupa brunabíl

Við Laug­ar­vatn hafa staðið hjól­hýsi í marga ára­tugi. Samfélag sem iðar af lífi á sumrin en leggst svo í dvala yfir vet­ur­inn. Hjól­hýsin eru í mis­jöfnu ásig­komu­lagi en flestum virð­ist vel við haldið og skraut­legir garðar og stórir pallar umlykja þau flest. Þarna hefur fólk komið sér fyrir, sumir komið árlega lengi en aðrir til­tölu­lega nýmættir. Núna í sept­em­ber verður hins vegar skrúfað fyrir vatnið og nær öllum gert að vera farin fyrir ára­mót.

Hjólahýsafólkið sem vildi kaupa brunabíl
For­mað­ur­inn Hrafn­hildur Bjarna­dóttir og mað­ur­inn hennar hafa haft sum­ar­at­hvarf á Laug­ar­vatni síðan 2015. Hún er nú for­maður Samhjóls, sam­taka hjól­hýsa­eig­enda á svæð­inu, og stendur í stappi við sveita­stjórn­ina um lokun svæð­is­ins. Mynd: Davíð Þór

Hjól­hýsa­svæð­inu sem staðið hefur við Lauga­vatn í fimm­tíu ár verður lokað fljót­lega. Innan um hýsin sem þar standa núna eru auðir en úfnir blettir, þar sem einu sinni hafa staðið hjól­hýsi og stórir pallar. Eitt og eitt tín­ast hýsin í burtu og þurfa þau síð­ustu að vera farin á næsta ári. Það er svo gott sem nákvæm­lega ár síðan sveit­ar­stjórnin í Blá­skóga­byggð tók ákvörðun um að láta loka svæð­inu. Áður en að sú ákvörðun var tekin voru um 200 hýsi á svæð­inu.

Það þarf ekki langan göngutúr um hjól­hýsa­svæðið á Laug­ar­vatni til að skilja og heyra nákvæm­lega afstöðu sam­fé­lags­ins þar til fyr­ir­hug­aðrar lok­unar. Þau ein­fald­lega skilja ekki hvernig nið­ur­staða sveit­ar­fé­lags­ins getur verið sú að reka þau burt. Úr því sem þau flest lýsa sem para­dís. „Mér finnst þetta alveg ynd­is­legt. Ég er fædd og upp­alin í sveit og finnst þetta alveg dýrð­legt. Þetta er bara eins og að koma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár