Færeyska ríkissjónvarpið: Samherjamálið til lögreglunnar og 350 milljóna króna skattar endurgreiddir

Dótt­ur­fé­lag Samherja í Færeyjum hefur end­ur­greitt skatta þar í landi sam­kvæmt fær­eyska rík­is­sjón­varp­inu. Skatt­skil dótt­ur­fé­lags Samherja þar í landi eru komin til lög­regl­unnar segir sjón­varps­stöðin. Um er að ræða einn anga Namib­íu­máls­ins.

<span>Færeyska ríkissjónvarpið:</span> Samherjamálið  til lögreglunnar og 350 milljóna króna skattar endurgreiddir
Fær­eyskir angar Sam­herj­a­máls­ins Skatt­skil dótt­ur­fé­lags Samherja í Færeyjum eru komin til lög­regl­unnar sam­kvæmt fær­eyska rík­is­sjón­varp­inu. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Heiða Helgadóttir

Skatt­skil fær­eysks dótt­ur­fé­lags útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja hafa verið kærð til lög­regl­unnar þar í landi. Frá þessu var greint í fær­eyska rík­is­sjón­varp­inu í kvöld. Félagið heitir Tind­hólmur og var notað til að greiða íslenskum starfs­mönnum Samherja í Namibíu laun. Fyrir vikið þurftu sjó­menn­irnir ekki að greiða skatta í Namibíu og fær­eysk lög eru þannig að dótt­ur­fé­lag Samherja gat fengið skatta mann­anna í Færeyjum end­ur­greidda. Það er fær­eyski skatt­ur­inn TAKS sem kærir málið. 

Færeyska rík­is­sjón­varpið greindi einnig frá því í kvöld að Tind­holmur hefði end­ur­greitt fær­eyskum yfir­völdum tæp­lega 350 millj­ónir króna vegna þessa. Þetta stað­festir lög­mað­ur­inn Jógvan Páll Lassen í frétt Kringvarps­ins. Um er að ræða 17 millj­ónir danskra króna.

Í frétt fær­eyska rík­is­sjón­varps­ins stað­festi Michael Boolsen, lög­reglu­stjóri í Færeyjum, að skatta­ayf­ir­völd hefðu sent málið til lög­regl­unnar.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár