Konurnar af Laugalandi óska eftir fundi með forsætisráðherra

Í yfir­lýs­ingu sem send var á fjöl­miðla óska konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi eftir því að rík­is­stjórnin fram­fylgi eigin sam­þykkt um að rann­sakað verði af fullri alvöru hvort þær hafi orðið fyrir ofbeldi og illri með­ferð þar.

Konurnar af Laugalandi óska eftir fundi með forsætisráðherra
Vilja fund með Katrínu Konur sem stigið hafa fram og borið að þær hafi verið beittar ofbeldi og harð­ræði á með­ferð­ar­heim­ilum í Eyja­firði hafa óskað eftir fundi með for­sæt­is­ráð­herra til að ræða málið.

Konur sem stigið hafa fram og lýst því að þær hafi verið beittar harð­ræði og ofbeldi þegar þær voru vistaðar á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, á árunum 1997 til 2007 hafa óskað eftir fundi með Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Óskin um fund er lögð fram vegna von­brigða kvenn­anna með fram­gang rann­sóknar máls­ins og við­bragða­leysis Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra.

Stundin greindi frá því í gær að kon­urnar telji að verið sé að þagga mál þeirra niður. Þær upp­lifi að fátt eða ekk­ert hafi gerst í rann­sókn þeirri sem rík­is­stjórnin sam­þykkti , að til­lögu Ásmundar Einars, á því hvort þær hefðu sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi, á meðan þær voru vistaðar á með­r­ferð­ar­heim­il­inu. Rík­is­stjórnin sam­þykkti að rann­sóknin færi fram 19. febr­úar síð­ast­lið­inn en síðan þá hafa kon­urnar ekk­ert heyrt frá Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar, sem fer með rann­sókn­ina. Þá hefur beiðni þeirra um fund með Ásmundi Einari ekki verið svarað, nú nítján dögum eftir að hún var send.

Konurnar hafa jafn­framt sent frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu:

Yfirlýsing frá konunum sem vistaðar voru á meðferðarheimilinu Laugalandi, áður Varpholti, á árunum 1997 til 2007

Þann 19. febr­úar síð­ast­lið­inn sam­þykkti rík­is­stjórnin til­lögu Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra um að rann­saka hvort við kon­urnar sem vistaðar vorum á Lauga­landi, áður Varp­holti, á árunum 1997-2007 hefðum sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi. 

Við fögn­uðum nið­ur­stöð­unni og við upp­lifðum að loks­ins var á okkur hlustað eftir ára­langa þöggun, yfir­hylm­ingu og aðgerð­ar­leysi yfir­valda gagn­vart okkur. 

Ásmundur ákvað að fela Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar (GEF) að rann­saka málið. 

Fyrir sam­þykki til­lög­unnar höfðum við átt tvo fundi með Ásmundi og aðstoð­ar­manni hans, Sóleyju Ragn­ars­dóttur lög­fræð­ingi, sem við vorum allar sáttar með. Við upp­lifðum að þeim væri umhugað um mál okkar og ein­lægur vilji væri til þess að rann­saka það af alvöru.  Ásmundur tók það sér­stak­lega fram  að við gætum haft sam­band við sig, eða Sóleyju, hvenær sem væri í þessu ferli og óskað eftir fundi eða upp­lýs­ingum. 

Núna tæpum tveimur mán­uðum síðar hefur engin okkar heyrt neitt frá GEF, að frá­töldu svari við tölvu­pósti sem ein af okkur sendi. 

Í svari stofn­ar­innar til blaða­manns Stund­ar­innar kom fram að vinna væri ekki hafin við að rann­saka mál okkar og að stofn­unin myndi sinna rann­sókn­inni sam­hliða öðrum verk­efnum. 

Það er reið­ar­slag fyrir okkur sem höfum staðið í þess­ari bar­áttu, séð okkur knúnar til þess að fara með mjög per­sónu­leg mál fram fyrir alþjóð í þeirri von að á okkur verði hlustað, okkur trúað  og að við fáum það ofbeldi sem við máttum sæta við­ur­kennt. 

Það slær okkur að GEF eigi að  sinna rann­sókn­inni sam­hliða mörgum öðrum verk­efnum. Ef miðað er við fyrri mál þar sem starfs­hættir svip­aðra heim­ila voru rann­sak­aðir má ætla að rann­sóknin verði umfangs­mikil. 

Það gefur okkur ekki miklar vonir að heyra að það hafi ekki verið sett á lagg­irnar sér­stakt teymi innan stofn­un­ar­innar eða feng­inn auk­inn mann­skapur til að koma að rann­sókn­inni. 

Okkur líður eins og rann­sókn máls­ins sé ekki gerð af neinni alvöru eða hafi for­gang. Við kon­urnar sem vorum beittar ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu sjáum ekki betur en að með­ferð máls­ins sé ekki í neinu sam­ræmi við þau lof­orð sem okkur voru gefin. 

Þann 25. mars síð­ast­lið­inn sendi Gígja Skúla­dóttir tölvu­póst fyrir hönd hóps­ins til Ásmundar og Sóleyjar þar sem við óskuðum eftir fundi vegna þess að við höfum áhyggjur af fram­gang mála. 

Einnig sendum við fyr­ir­spurnir varð­andi rann­sókn­ina, til dæmis varð­andi tímara­mma, hverjir koma að henni, hvað verður gert við upp­lýs­ing­arnar o.s.frv. Þeim tölvu­pósti hefur enn ekki verið svarað núna 19 dögum síðar. 

Við óskum eftir að rík­is­stjórnin fram­fylgi því sem hún sam­þykkti þann 19. febr­úar og rann­saki mál okkar kvenn­anna af alvöru.

Við óskum eftir því að rík­is­stjórnin sjái til þess að rann­sóknin verði sett í for­gang en mæti ekki afgangi. 

Við óskum einnig eftir því að upp­lýs­ingum varð­andi rann­sókn­ina verði komið til skila til okkar enda er um að ræða við­kvæm og per­sónu­leg mál sem varða okkur.

Alex­andra Magn­ús­dóttir

Ásta Önnu­dóttur

Brynja Skúla­dóttir 

Gígja Skúla­dóttir 

Gyða Dögg Jóns­dóttir

Harpa Særós Magn­ús­dóttir

Hrafn­hildur Jóhann­es­dóttir 

Katrín Alex­andra

Kolbrún Þor­steins­dóttir

María Ás Birg­is­dóttir 

Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík

Tinna Páls­dóttir 



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laugaland/Varpholt

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár