Það var vor í lofti í Vestmannaeyjum í dag, súld og níu stig. Óvíða er meira fuglalíf á Íslandi en einmitt þar. Mest ber á sjófuglum, sem kjósa sér varpstæði í sæbröttum hömrum, eða bröttum grasbölum, enda stutt á miðinn. Algengustu tegundirnar í og við Vestmannaeyjar eru fýll, súla, langvía, álka og auðvitað lundinn, þjóðarfugl Eyjamanna.
Athugasemdir