Kínverska listakonan og ljósmyndarinn Shu Yi hefur búið og starfað á Íslandi síðustu sjö árin. Nú hefur hún sett upp sína fyrstu einkasýningu, ljósmyndasýninguna „Áningin“ í MUTT gallerí á Laugaveginum. Myndirnar eru 18 talsins og allar teknar á stóra filmu, með langt ljósop - allt upp í klukkutíma. „Þetta eru myndir af núinu, hreyfingarlaust endurvarp og skoðun ofar því sem hugurinn nemur. Þessum hughrifum nær filman, hún er nefnilega óútreiknanlega göldrótt.“
Athugasemdir