Bragi beitti sér gegn því að ráðuneytið kannaði ábendingar um ofbeldi

Fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, Bragi Guð­brands­son, hvatti félags­mála­ráð­herra til að gera sem minnst úr ásök­unum á hendur for­stöðu­manni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands, Ingjaldi Arn­þór­syni, við fjöl­miðla. Þá lagð­ist hann einnig gegn því að félags­mála­ráðu­neytið afl­aði gagna um málið.

Bragi beitti sér gegn því að ráðuneytið kannaði ábendingar um ofbeldi
Vildi að ráð­herra gerði sem minnst úr mál­inu Bragi hvatti ein­dregið til þess að Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi félags­mála­ráð­herra, myndi gera sem minnst úr ásök­unum um ofbeldi Ingj­aldar við fjöl­miðla. Mynd: DV / Sigtryggur Ari

Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist hart gegn því að félags­mála­ráðu­neytið afl­aði upp­lýs­inga um mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands þegar fram komu ábend­ingar um að for­stöðu­maður heim­il­is­ins, Ingj­aldur Arn­þórs­son, beitti stúlkur sem þar voru vistaðar ofbeldi. Þá hvatti hann til þess að félags­mál­ráð­herra ætti að gera sem minnst úr mál­inu.

Í ágúst­mán­uði árið 2007, nánar til­tekið hinn 23., sendi Haukur Arn­þórs­son, bróðir Ingjalds, tölvu­póst á Braga og á félags­mála­ráðu­neytið. Efni tölvu­póst­ins voru áhyggjur Hauks af með­ferð Ingjalds á skjól­stæð­ingum sínum, en einnig fram­göngu hans í garð fyrr­ver­andi konu sinnar, Áslaugar Brynjars­dóttur, og barna þeirra.

Hrannar B. Arn­ars­son

Aðfara­nótt 24. ágúst, klukkan 00:35, sendi Bragi tölvu­póst á Hrannar B. Arnarson, aðstoð­ar­mann félags­mála­ráð­herra sem þá var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir. Með tölvu­póst­inum fylgdi minn­is­blað Braga um tölvu­póst Hauks varð­andi Ingjald. „Eins og kemur fram í minn­is­blað­inu tel ég að ráð­herra eigi að gera sem minnst úr mál­inu við fjöl­miðla ef þess er nokkur kostur. Hér er um fjöl­skyldu­harm­leik að ræða sem Haukur hefur enga heim­ild til að fjalla um opin­ber­lega. Ég tel að ráðu­neytið eigi alls ekki að afla frek­ari upp­lýs­inga um málið enda ekk­ert sem rök­styður slíka ákvörðun. Slík ákvörðun myndi ein­fald­lega þykja frétt­næm og kalla á [svo] sem síðan væru frétt­næm og halda hringekj­unni gang­andi,“ skrif­aði Bragi.  

„Kaerar takkir! Tu hefur lokad tessu mali med style!“
Hrannar B. Arn­ars­son
aðstoð­ar­maður félags­mála­ráð­herra

Daginn eftir sendi Bragi annan tölvu­póst á Hrannar en um morg­un­inn hafði DV birt umfjöllun um mál­efni Lauga­lands og Ingjalds. Í þeim tölvu­pósti full­yrðir Bragi að hann hafi fengið það stað­fest hjá Daníel Guð­jóns­syni, yfir­lög­reglu­þjóni á Akureyri, að Ingj­aldur hafi aldrei verið kærður vegna lík­ams­árásar, líkt og sagði í DV. Með hvaða umboði Bragi sótti þær upp­lýs­ingar til lög­regl­unnar kemur ekki fram. Þá segir einnig að Bragi hafi rætt við Helgu Hann­es­dóttur geð­lækni, sem kann­að­ist við að Haukur hefði hringt í hann og rætt mál­efni Ingjalds og Áslaugar. Það sem Haukur hafi hins vegar eftir henni í bréfi sínu kann­ist hún ekki við og segir það hans eigin hug­ar­burð.

Þessu bréfi svarar Hrannar fimm mín­útum síðar með skila­boð­unum: „Kaerar takkir! Tu hefur lokad tessu mali med style!“

 Í Stund­inni í dag er ítar­lega fjallað um mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands, ásak­anir á hendur Ingjaldi um ofbeldi og yfir­gang, og hvernig Bragi beitti sér til varnar honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár