Það eru 105 vitar á landinu. Einn sá elsti, Atlagerðisvitinn, var byggður árið 1918 og stendur á Tanga á Vatnsleysuströnd, við Stóralón og Litlalón. Í hásuður blasir Fagradalsfjall við í tæplega tíu km fjarlægð, og í norður Snæfellsnesið á góðum degi. En ekki í dag, það var ansi napurt á Reykjanesinu í morgun, hvöss norðanátt og gekk á með smá éljum, á meðan jörð hríðskalf undir Fagradalsfjallinu.
Athugasemdir