Þórufoss er stærsti fossinn í Laxá í Kjós og efsti veiðistaður árinnar. Þar mætti ég dönskum ferðalöngum sem voru frelsinu fegnir eftir vikulanga sóttkví að mynda þennan 18 metra háa foss, sem lék lítið hlutverk í Game of Thrones þáttaröðinni. Kjósarhreppur er einn af fámennari sveitarfélögum landsins en íbúatalan í hreppnum er rúmlega 200 sálir.
Athugasemdir