Mynd: Heiða Helgadóttir

Misstu vinnuna í Covid og opnuðu hringrásarverslun

Hjónin Davíð Örn Jóhanns­son og Jana Maren Ósk­ars­dóttir opn­uðu hringrás­ar­verslun með fatnað og fylgi­hluti við Hlemm og vilja stuðla að end­ur­nýt­ingu á fatn­aði.

„Eftir að við misstum bæði vinn­una með dags milli­bili í byrjun Covid-far­ald­urs­ins varð kjörið tæki­færi fyrir okkur að gera eitt­hvað í sam­ein­ingu,“ útskýrir Davíð Örn Jóhanns­son, sem nú í byrjun jan­úar opn­aði versl­un­ina Hringekj­una ásamt eig­in­konu sinni, Jönu Maren Ósk­ars­dóttur. „Í byrjun sum­ars keyptum við okkur 94’ tjald­vagn og eyddum mestum hluta sum­ars­ins úti á landi, sem voru kjörað­stæður til að láta hug­ann reika. Grunn­hug­myndin skaut upp koll­inum í spjalli með vinum á Seyð­is­firði í ágúst og erum við búin að vinna að þessu sleitu­laust síðan.“ 

Fylla á bása og halda þeim snyrtilegum

Jana segir að þau kalli þetta hringrás­ar­verslun með fatnað og fylgi­hluti. „Okkur lang­aði að finna eitt­hvert íslenskt hug­tak yfir starf­semi á borð við okkar þar sem not­ast hefur verið við hug­takið „loppu­búðir“, sem er tekið úr dönsku. Eftir því sem við komumst næst, eftir óvís­inda­legar Google-nið­ur­stöður, er um nýyrði að ræða og von­umst við til …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár