Ljósmyndarinn og heimspekingurinn Snorri Sturluson er með sína fyrstu ljósmyndasýningu hér heima, American Dreams, í Gallery Port á Laugaveginum. Myndirnar tók hann á sextán ára tímabili, þegar hann bjó í borginni sem aldrei sefur, New York, árin 2001-2017. „Sýningin varð til í einhverskonar hugleiðslu á rölti mínu um stórborgina. Líka rannsókn á félagslegum og pólitískum veruleika bandarísks samfélags.“ Sýningin stendur til 20 febrúar.
Athugasemdir