Það var sérkennilegt veður í höfuðborginni í dag. Gekk á með dimmum éljum, mjög bjart á milli. Hér sjáum við yfir Faxaflóann á Akrafjall, rísa 643 metra upp við mynni Hvalfjarðar. Til að setja hæðina í samhengi við önnur fjöll, þarf hálft Akrafjall í viðbót til að ná hæðinni á Esjunni handan við fjörðinn. Það þarf síðan þrettán og hálft Akrafjall til að ná hæð K2 í Pakistan. Hvannadalshnjúkur er rúmlega þrisvar sinnum hærri en Akrafjall.
Athugasemdir