Það var tilkomumikið að sjá og heyra síðan dynjandi fossinn undir klakabrynjunni nú í morgun. Dynjandi er mestur fossa á Vestfjörðum, þar sem sex fossar falla 100 metra niður af Dynjandisheiðinni. Hér er sá efsti og stærsti, Fjallfoss, 80 metra hár og breiður neðst. Síðan koma Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss.
Athugasemdir