Arnarfjörður vestur á fjörðum er mesti skrímslafjörður á Íslandi. Fjörulallar eru víða, svo og ýmsar stærri og meiri ókindir, í og við sjó. Nokkur dæmi eru um að togarar hafi fengið skrímsli í vörpuna. Þess vegna er það lífsnauðsynlegt að vara ferðalanga við, eins og þetta skilti á Ketildagsvegi vestan Bíldudals, til að minna mann og annan á þessa miklu vá.
Athugasemdir