Það eru skynjarar sem nema hreyfingar frá áhorfendum og umhverfinu í vídeóverkinu Truflun / Interference eftir listamennina Harald Karlsson og Litten Nystrøm sem varpað er á Hallgrímskirkju. Verkið er eitt 23 listaverka á Ljósaslóð í miðbæ Reykjavíkur, sem er hluti Vetrarhátíðar sem hófst í gær og stendur fram á sunnudagskvöld á öllu höfuðborgarsvæðinu. Kveikt er á verkunum frá klukkan 18 til 21 alla daga hátíðarinnar.
Athugasemdir