Í kvöld klukkan átta, á alþjóðadegi gegn krabbameinum, er Kraftur með söfnunar- og skemmtiþáttinn „Lífið er núna“ í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans og í netstreymi á mbl.is. Meðal þeirra listamanna sem koma fram eru GDRN, Valdimar, Ari Eldjárn, Sigríður Thorlacius og Páll Óskar (mynd). Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Um sjötíu ungir einstaklingar greinast hér með krabbamein árlega.
Athugasemdir