Í nær sex áratugi var Hvítárbrúin hjá Ferjubakka í Borgarfirði aðal þjóðleiðin milli landshluta. Þessi einbreiða 106 metra langa brú, hönnuð af Árna Pálssyni verkfræðingi hjá Vegagerðinni, var valin af Verkfræðifélagi Íslands sem eitt af verkfræðiafrekum síðustu aldar á Íslandi. Hvítárbrúin sem stendur nú á vegi 510 var byggð af Vegagerðinni á sex mánuðum árið 1928 og kostaði verkið hvorki meira né minna en 169 þúsund krónur.
Athugasemdir