Við Íslendingar erum 368.590 talsins, eða 0,005% jarðarbúa, sem voru nú um áramótin 7.874.965.825 talsins. Af þessum tæplega 370 þúsund landsmönnum búa hér 51.180 erlendir ríkisborgarar, eða 13,9% af heildarfjöldanum – og hafa aldrei verið fleiri. Algengustu eiginnöfn karla eru Jón, Sigurður og Guðmundur en algengustu kvenmannsnöfnin eru Guðrún, Anna og Kristín. Ísafold (mynd) er ein 32 kvenna sem bara það eiginnafn, meðan Guðrúnarnar eru 4.656.
Athugasemdir