Við Cuxhavengötuna í Hafnarfirði bíða þessir 1.000 kílóa pokar af salti að komast í næstu fiskvinnslu. Í dag er saltfiskur oftast forsaltaður í 2-3 daga með sprautun og pæklun. Síðan er fiskurinn þurrsaltaður eða kafsaltaður í ker og mettast þá af salti. Við söltun fer náttúrulegur saltstyrkur í fiskvöðva úr 0,2% í rúmlega 20%. Helstu kaupendur af saltfiski eru Spánn, Portúgal, Brasilía og Ítalía. Pokinn með 1.000 kílóum af salti kosta 25.972 krónur, hingað kominn alla leiðina frá Túnis.
Athugasemdir