Í dag var Þorsteinn Halldórsson ráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna. Hans fyrsta stóra mót með liðinu verður EM á Englandi á næsta ári. Auðvitað líka að koma landsliðinu á næsta Heimsmeistaramót, en undankeppnin fyrir það mót hefst strax í haust. Þorsteinn hefur undanfarin sex ár þjálfað Breiðablik með góðum árangri. Þorsteinn vann sinn fyrsta leik sem þjálfari þegar kvennalið Fram vann FH úti í 3-0 í annarri deildinni þann 3. júní árið 1993.
Athugasemdir