Stríðsmaðurinn sem gróf öxina. Eða öllu heldur axirnar

Sveita­pilt­ur­inn Svavar Gestsson þvæld­ist inn í póli­tík og varð eitt helsta „póli­tíska animal“ lands­ins. Karl Th. Birg­is­son segir sögu hans frá einu sjón­ar­horni.

Stríðsmaðurinn sem gróf öxina. Eða öllu heldur axirnar

Svavar Gestsson var flók­inn maður. Hann virk­aði ein­lægur í við­kynn­ingu, for­vit­inn, spurði margs, en augun voru alltaf svo­lítið flökt­andi, og spurn­ing­arnar virt­ust þess vegna stundum ekki alveg ekta.

Eins og hann ætti von á óvinum handan við öxl­ina á sér.

Og það sem hann gat átt von á óvinum, raun­veru­legum og hugs­an­legum. Einkum innan flokks síns, Alþýðu­banda­lags­ins.

Rétt eins og Gísli Súrsson, sem þurfti að hafa var­ann á sér miss­erum og árum saman. Eftir hjaðn­inga­víg innan fjöl­skyld­unnar.

Svavar Gestsson var ekki aðeins einn af merk­ari stjórn­mála­mönnum síð­ustu aldar, heldur afsprengi og end­ur­speglun þess hvað það var ömur­leg öld, þrátt fyrir alla hennar stór­kost­legu sigra í vís­indum og tækni.

Tvær heims­styrj­aldir, kalt stríð, og í okkar pínu­litla íslenzka sam­hengi svo skemm­andi stjórn­mál að við gjöldum þeirra enn í dag.

Í bæði efna­hag og sál­ar­lífi.

Stiklum á stóru.

—

Svavar fædd­ist á Guðna­bakka í Staf­holtstungum árið 1944. Í Dölunum. Sá upp­runi …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár