Mynd: Heiða Helgadóttir

Syndir Varnarliðsins: Blýmengun í drykkjarvatni á Ásbrú

Rannsókn Stund­ar­innar sýnir að enn mælist blý í drykkj­ar­vatni á Ásbrú í Reykja­nesbæ, og var allt að tvö þús­und sinnum meiri en leyfi­legt var þegar verst lét. Blý getur haft óaft­ur­kræf og alvar­leg áhrif á heilsu fólks, sér­stak­lega barna.

Óbirt rann­sókn­ar­gögn á blý­mengun í drykkj­ar­vatni á varn­ar­svæð­inu sýna að magn blýs í vatn­inu var allt að tvö þús­und sinnum meira en leyfi­legt er þegar verst var.

Banda­rísk yfir­völd gerðu ítar­legar mæl­ingar á magni blýs í drykkj­ar­vatni á árunum 1996 til 1999 og hefur Stundin nið­ur­stöð­urnar undir höndum. Stundin tók vatns­sýni á Ásbrú­ar­svæð­inu og enn mælist blý í drykkj­ar­vatni þar.

Blý getur haft alvar­leg, óaft­ur­kræf áhrif á heilsu fólks og sér­stak­lega börn.

Varnarliðið og íslenskt umhverfi

Árið 1951 skrif­uðu Ísland og Banda­ríkin undir varn­ar­samn­ing. Sama ár kom her­inn sér fyrir á nýbyggðri her­stöð­inni á Mið­nes­heiði. Töluverð and­spyrna var gegn við­veru hers­ins hér á landi og fóru frið­ar­sam­tök oft í svo­kall­aða Kefla­vík­ur­göngu til að mót­mæla við­veru hers­ins hér á landi. Upp­bygg­ing var mikil á varn­ar­svæð­inu og þegar umsvifin voru mest bjuggu yfir 5.700 manns á her­stöð­inni, her­menn og fjöl­skyldur þeirra. Her­stöðin var í raun sér sveit­ar­fé­lag, eitt það stærsta á land­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár