267. spurningaþrautin: Soprano, Soho, Napoli, kúskús

267. spurningaþrautin: Soprano, Soho, Napoli, kúskús

Hér er þraut frá í gær, já.

***

Auka­spurn­ingin fyrri:

Skoðið vand­lega mynd­ina hér að ofan. Hver er karl­inn sem hér er verið að hand­taka?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað hét leik­ar­inn sem lék Mafíu­bófann Tony Soprano í sjón­varps­þátta­röð um hann og fjöl­skyldu hans?

2.   Hver er lengsti fjall­garður í heimi?

3.   Í tveimur borgum á Vest­ur­löndum eru hverfi sem kall­ast Soho. Hverjar eru borg­irnar?

4.   Hver skrif­aði bók­ina Fólkið í kjall­ar­anum og fékk fyrir Íslensku bók­mennta­verð­launin.

5.   Hann fædd­ist árið 1873 í ítölsku borg­inni Napólí og dó þar í borg líka, ekki nema 48 ára árið 1921. Þess á milli ferð­að­ist hann um heim­inn og óhætt er að segja að hann hafi lagt þann sama heim að fótum sér. Hann var fasta­gestur í helstu heims­borgum Vest­ur­landa og naut alls staðar ein­róma aðdá­unar. Hann naut líka góðs af nýrri tækni við að breiða út orð­spor sitt og frægð. Hvað hét þessi ástríðu­fulli maður?

6.   Í hvaða landi er for­set­inn Musaveni?

7.   Cous-cous eða kús-kús réttir af ýmsu tagi eru vin­sælir, ekki síst í Norður-Afríku. Kús-kúsið gegnir þá svip­uðu hlut­verki og kart­öflur eða hrís­grjón í öðrum heims­hlutum. En úr hverju er kús-kúsið sjálft?

8.   Rosalind Franklin hét kona ein á Englandi sem átti mik­inn þátt í að efla skiln­ing vís­inda­manna á fyr­ir­bæri einu og olli starf hennar — og fleiri vís­inda­manna — sann­kall­aðri bylt­ingu í vís­indum 20. aldar. Hún dó aðeins 37 ára áður en mik­il­vægi upp­götv­ana hennar komst að fullu fram í dags­ljósið og síðan olli land­læg karl­remba því að hlutur hennar var lengi fyrir borð bor­inn, en tveimur körlum hampað mjög fyrir upp­götvun þessa fyr­ir­bæris. Hvaða fyri­bæri var þetta?

9.   Hvers konar dýr er kap­all?

10.   Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur að sögn vart sinnt starfi sínu síðan hann tap­aði for­seta­kosn­ing­unum í byrjun nóv­em­ber, heldur ein­beitt sér að sam­sær­is­kenn­ingum um kosn­inga­svik. Á einu og aðeins einu sviði hefur hann þó sýnt mik­inn dug, því hann beitti sér fyrir því að ríkið tæki aldeilis á sig óvæntan rögg við sér­stakar og mjög svo umdeildar athafnir sem hingað til hafa verið látnar kyrrar liggja á tíma­bili milli for­seta­skipta. Hvað er hér um að ræða? 

***

Auka­spurn­ing sú hin seinni:

Sjald­gæft var að sjá konur á graf­hýsi Leníns þar sem helstu menn Sov­ét­ríkj­anna komu saman á hátíð­is­dögum. Hvað hafði sú kona, sem sést til vinstri á mynd­inni hér að neðan, unnið til þess árið 1963 að fá að stilla sér þar upp ásamt Nikta Krústjov?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Gand­olfini.

2.   And­es­fjöll.

3.   London og New York.

4.   Auður Jóns­dóttir.

5.   Caruso óperu­söngv­ari.

6.   Úganda.

7.   Hveiti.

8.   DNA.

9.   Hryssa.

10.   Aftökur

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir hand­töku Martin Luther Kingsþ

Neðri myndin sýnir fyrstu kon­una sem fór út í geim­inn. Hún heitir Val­ent­ina Ter­es­hkova en ekki er nauð­syn­legt að þekkja nafn hennar í þetta sinn.

***

Hér er svo þraut frá í gær, já.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár