263. spurningaþraut: 007, Blondie, þrjú afmælisbörn og fleira

263. spurningaþraut: 007, Blondie, þrjú afmælisbörn og fleira

Þrautin í gær!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir fjallið sem sjá má á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Þessi á líka við mynd­ina hér að ofan. Fjallið á mynd­inni prýðir alkunn­ugt vöru­merki. Hvaða vöru­merki er það?

2.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Canberra?

3.   Hver skrif­aði leik­ritið um Ríkarð III?

4.   Hvað merkir 00 í ein­kenn­is­núm­eri bresku njósn­a­hetj­unnar 007 eða James Bond?

5.   Hljóm­sveitin Blondie ætlar í tón­leika­ferð um Bretland í nóv­em­ber 2021. Þá verður aðal­söng­konan orðin 76 ára en hún mun vart láta sitt eftir liggja, ef ég þekki hana rétt. Hvað heitir hún?

6.  Þjórsá er lengsta á á Íslandi, að talið er. Hvað þýðir „þjór“?

7.   Hvernig er fram­haldið: „Á mis­jöfnu þríf­ast ...“?

8.   Eitt af afmæl­is­börnum dags­ins fædd­ist 14. jan­úar árið 83 fyrir Krist. Hann var einn af helstu hjálp­ar­kokkum Júliusar Caesars í Róma­veldi hinu mikla, en eftir að Caesar var myrtur gerð­ist hann sjálfur valda­maður mik­ill. Hann reyndi meira að segja að koma í stað Caesars í sæng drottn­ing­ar­innar af Egifta­landi, hennar Kleopötru. Um síðir beið hann lægri hlut í borg­ara­stríði í Róm gegn Ágústusi þeim sem varð fyrsti form­legi keis­ari heims­velds­ins. En hvað hét afmæl­is­barnið?

9.   Annað afmæl­is­barn dags­ins fædd­ist öllu síðar eða 14. jan­úar árið 1982. Hann lagði fyrir sig fót­bolta og stóð í marki Barcelona á gull­ald­ar­tíð­inni undir stjórn Pep Guardi­ola, þegar hann hjálp­aði Messi og félögum að vinna allt sem í boði var. Seinna reyndi mark­vörður þessi fyrir sér hjá Manchester United, en raunar með litlum árangri. Hvað heitir hann?

10.    Þriðja afmæl­is­barnið fædd­ist á þessum degi 1969 og var um hríð trommu­leik­ari í hinni vin­sælu og áhrifa­miklu hljóm­sveit Nirvana, en stofn­aði síðan sína eigin hljóm­sveit, Foo Fighters. Hvað heitir þetta afmæl­is­barn?   

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá eina allra, allra fræg­ustu konu 20. ald­ar­innar eins og hún leit út í blá­bernsku. Undir hvaða nafni varð hún síðar fræg?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Tobler­one.

2.   Ástralía.

3.   William Shakespe­are.

4.   Að hann hefur leyfi til að drepa.

5.   Debbie Harry.

6.   Naut.

7.   Börnin best.

8.   Marcus Antonius.

9.   Victor Valdez.

10.   David Grohl.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fjallið á efri mynd­inni er Matt­er­horn.

Barnið á neðri mynd­inni varð frægt undir nafn­inu Marilyn Monroe.

***

Og svo aftur þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
6
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár