262. spurningaþraut: Hve margir eru jarðarbúar og hver móðgaði guð?

262. spurningaþraut: Hve margir eru jarðarbúar og hver móðgaði guð?

Gætið að þraut­inni frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þessi karl­maður?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hversu margir eru Jarð­ar­búar af mann­kyni? Hér verður að gefa nokkuð rúmt svig­rúm eða um 300 millj­ónir til eða frá.

2.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Nepal?

3.   Hvaða fjörður, vogur, flói eða vík er á milli Eyja­fjarðar og Öxar­fjarðar?

4.   Hvað heitir félagið sem rekur Borg­ar­leik­húsið?

5.   „Ég hef móðgað guð og mann­kynið vegna þess að verk mín náðu ekki þeim gæðum sem þau hefðu átt að gera.“ Þetta voru loka­orð lista­manns sem dó árið 1519. Flestir eru reyndar ósam­mála hinum stranga dómi hans um eigin verk, en hver var mað­ur­inn?

6.   Í hvaða evr­ópska ríki voru flestar konur við stjórn­völin á 18. öld, eða fjórar tals­ins (auk einnar sem ríkti sem rík­is­stjóri í rúmt ár)?

7.   Föður Kára Stef­áns­sonar, Stefáni Jónssyni, var ýmis­legt til lista lagt, og sat meðal ann­ars á þingi í níu ár. En fyrir hvaða aðal­starf var Stefán kunn­astur fram að því?

8.   Í hvaða grein skar­aði Olga Færseth helst fram úr?

9.   Kona nokkur fædd­ist árið 1890 og lést 104ja ára snemma árs 1995. Hún hét Rose og þótti mörgum góðum gáfum gædd, en eins og var hlut­skipti ýmissa kvenna af henni kyn­slóð varð hún samt kunn­ust fyrir eig­in­mann sinn og börn. Hún eign­að­ist níu börn en frægastur er næstelsti son­ur­inn sem fædd­ist 1917 og lést nokkuð fyrir aldur fram. Síðasta dóttir Rose dó í fyrra. Hvaða ætt­ar­nafn bar Rose þessi?

10.   Hvað var milli­nafn Margaret Thatcher?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er þessi roskni bíll?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Í gær voru Jarð­ar­búar rúm­lega 7,84 millj­arðar. Rétt telst vera allt frá 7,5 til 8,1 millj­arðar.

2.   Katmandu.

3.   Skjálf­andi.

4.   Leik­fé­lag Reykja­víkur.

5.   Leonardo da Vinci.

6.   Rúss­landi.

7.   Frétta­maður.

8.   Í fót­bolta.

9.   Kennedy.

10.   Hilda.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni er Assange, forprakki Wikileaks.

Á neðri mynd­inni er þessi ljóm­andi snotri Benz, sem sjá má í heilu lagi hér til hliðar.

***

Hér er svo aftur hlekkur á þraut­ina frá gær­deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár