Einsemd og dauði á göngum Landspítalans á tímum Covid-19

Árið 2020 var merki­legt fyrir margra hluta sakir en ekki síst fyrir það hversu nálægur dauð­inn varð sam­fé­lag­inu í heild sinni. Aldrei áður hafa borist jafn margar til­kynn­ingar í sjón­varp­inu af dauðs­föllum og hvað þá með svo stuttu milli­bili yfir svo langan tíma.

Einsemd og dauði á göngum Landspítalans á tímum Covid-19
Sjúkra­hús­prestur Eysteinn klæð­ist aldrei prestskraga í vinnu sinni á spít­al­anum nema ef hann þarf að skíra börn sem munu ekki lifa lengi eða þegar hann giftir fólk rétt fyrir and­lát þeirra. Hann segir sjúk­ling­ana hræð­ast krag­ann, krag­inn þýði að þeirra tími sé mögu­lega kom­inn. Mynd: Davíð Þór

Árið 2020 var merki­legt fyrir margra hluta sakir en ekki síst fyrir það hversu nálægur dauð­inn varð sam­fé­lag­inu í heild sinni. Aldrei áður hafa okkur borist jafn margar sjón­varp­aðar til­kynn­ingar af dauðs­föllum og hvað þá með svo stuttu milli­bili yfir svo langan tíma. 

Dauðinn var misná­lægt okkur öllum á þessu for­dæma­lausa ári sem leið nýlega undir lok, en Eysteinn Orri Gunn­ars­son, prestur á Land­spít­al­anum, komst í snert­ingu við dauð­ann alla daga, allar vikur árs­ins.

Aðspurður hvort dauð­inn hafi færst nær honum í sínu starfi á síð­asta ári segir hann: „Það er ekki spurn­ing,“ segir Eysteinn en hann starfar á öllum deildum spít­al­ans og starfs síns vegna hefur hann átt í gríð­ar­mörgum sam­tölum um dauð­ann á tímum heims­far­ald­urs­ins.

Dauðinn á göngum krabbameinsdeildarinnar

Hann minn­ist fyrst á krabba­meins­deild­ina þar sem hann starfar dag­lega. „Ég starfa sem sjúkra­hús­prestur á krabba­meins­deild­unum á spít­al­anum þar sem sjúk­ling­arnir eru auð­vitað sér­stak­lega við­kvæmur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dauðans óvissa eykst

ViðtalDauðans óvissa eykst

Veturinn kom þennan dag

Á hálfu ári missti Guðlaug Guðmunda Ingi­björg Berg­sveins­dóttir móður sína, ömmu og afa. Fleiri áföll héldu áfram að hlað­ast upp í lífi hennar en þrátt fyrir það sagði læknir henni, þegar hún loks leit­aði aðstoðar, að hún væri ekki að kljást við þung­lyndi því hún hefði svo margt fyrir stafni. Nú þegar þrjú ár eru liðin síðan áföllin riðu yfir er hún enn með höf­uðið fast í hand­bremsu, eins og hún lýsir því sjálf.

17 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár