Seyðisfjörður gengur suður úr Ísafjarðardjúpi og liggur á milli Álftafjarðar og Hestfjarðar. Þar er kirkjustaðurinn Eyri undir Hesti, 540 metra háu fjalli sem skilur að firðina. Djúpvegurinn, sem tengdi Ísafjörð við Strandir og áfram suður, var lagður í Seyðisfirði árið 1975.
Er að velta því fyrir mér hvort rétt sé að segja að Eyri sé undir Hestinum sem er handan fjarðarins. Er Eyri ekki undir fjallinu sem eyrin sjálf skagar út úr? Er Reykjavík undir Esjunni? Varla, en Grundarhverfið er hins vegar undir Esjunni.
0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir (1)