Ekki verið að hvetja alla til að sitja heima hjá sér og hitta engan
Það er ekki verið að hvetja fólk til að sitja inni og hitta ekki nokkurn mann, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir. „Það væri lock-down,“ segir Þórólfur og segir að það sé ekki verið fara fram á slíkt. Á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag var fólk hvatt til að fara að undirbúa aðventuna og jólin í samræmi við sóttvarnir. Draga ætti úr eða sleppa jólaboðum.
Ekki er hægt að búa til fyrirsjáanleika varðandi Covid-19 smit þar sem enginn fyrirsjáanleiki er til staðar varðandi veiruna. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Var hann þar að svara spurningu um hvort hægt væri að gefa fólki og rekstraraðilum einhver svör um framhaldið í ljósi þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur á efnahagslífið.
Þórólfur, Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögðu allir mikla áherslu á að fólk gætti að persónulegum sóttvörnum nú sem aldrei fyrr. Búið væri að setja inn á Covid.is leiðbeiningar um sóttvarnir á aðventunni sem myndu verða uppfærðar eftir því sem frá líður.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum veiktist af Covid-19 í síðustu viku og greindi frá því á Facebook að nokkur fjöldi fólks hefði komið í heimsókn til hans áður en smitsins varð vart. Hefur Víðir setið undir nokkurri gagnrýni fyrir vikið. Spurður út í þetta sagði Rögnvaldur að ekki væri rétt að ræða einkahagi Víðis. Þórólfur sagði að sóttvarnaryfirvöld væru ekki að hvetja alla til að sitja heima hjá sér og hitta ekki nokkurn mann. „Það væri lock-down,“ segir Þórólfur og ekki sé verið að boða það. Fara á eftir reglunum sem eru til staðar, tíu manna hámarki, tveggja metra reglu, grímuskyldu og persónubundnum sóttvörnum öðrum. Þannig lágmarki fólk hættuna á því að smit berist á milli.
Athugasemdir