Covid-19 faraldurinn mögulega á uppleið á ný

Ýmislegt bendir til að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn sé á upp­leið á ný, eftir að vel hefur tek­ist til að ná tökum á honum að und­an­förnu, segir Þórólfur Guðnason. Fólk virð­ist ekki vera að passa sig nægi­lega.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir seg­ist hafa tölu­verðar áhyggjur af smit­tölum síð­ustu daga og einkum því­hversu margir sem grein­ast séu utan sótt­kvíar. Fólk virð­ist ekki vera að passa sig nægj­an­lega, segir Þórólfur. Hann sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag mögu­legt að Covid-19 far­ald­ur­inn sé aftur á upp­leið.

Þórólfur sagði að hans mat væri að við stæðum nú á ákveðnum kross­götum. Verulegt ákall væri úr sam­fé­lag­inu um að slakað yrði á tak­mörk­unum en rétt væri að minna á að sá árangur sem hefði náðst síð­ustu daga og vikur hefði náðst með þeim aðgerðum sem farið hefði verið í í sótt­varn­ar­skyni. Mik­il­vægt væri að fólk sýndi áfram þol­gæði og gætti að per­sónu­legum sótt­vörnum sínum áfram.

Hefur áhyggjurÞórólfur hefur tals­verðar áhyggjur af þróun Covid-19 smita og telur mögu­legt að far­ald­ur­inn sé á upp­leið að nýju.

Þórólfur hefur skilað til­lögum til heil­brigð­is­ráð­herra um breyt­ingar á tak­mörk­unum í sótt­varn­ar­skyni en ekki væri tíma­bært að ræða inni­hald þeirra. Hins vegar væri mögu­legt að gera þyrfti breyt­ingar á þeim til­lögum ef þróun mála  yrði á þann veg að far­ald­ur­inn myndi sækja í sig veðrið á nýjan leik, eins og hann ótt­að­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár