Tjarnarbíó stendur höllum fæti eftir heimsfaraldurinn

Rekstur Tjarn­ar­bíós stendur höllum fæti vegna sam­komu­tak­mark­ana í kjöl­far Covid-19. Mórall­inn er þó góður meðal starfs­manna og lista­manna sem fá að vinna að verkum sínum í hús­inu á meðan far­ald­ur­inn fer sína eigin leið.

Friðrik Frið­riks­son, fram­kvæmda­stjóri Tjarn­ar­bíó, segir í sam­tali við Stundina að rekstur leik­húss­ins eigi í hættu á gjald­þroti vegna Covid-19. Leik­húsið sé háð miða­sölu­tekjum og húsið hafi verið tómt af áhorf­endum meg­in­hlut­ann af þessu ári. 

Rússíbanaferð

„Staðan hjá Tjarn­ar­bíó í dag varð­andi þetta ástand er frekar slöpp,“ segir Friðrik. Framan af árinu, í byrjun mars og út maí mánuð var hús­inu lokað. Þegar sum­arið bar að garði kom þó líf aftur í húsið, uppi­stands­sýn­ingar fylltu húsið af áhorf­endum og hlátri. Í lok sum­ars eða í ágúst mán­uði var hús­inu aftur skellt í lás áður en það var opnað aftur í sept­em­ber. „Þetta er búið að vera rús­sí­bana­ferð,“ segir Friðrik. 

Friðrik Frið­riks­son

Nú er sá tími árs­ins þar sem rekst­ur­inn hefur verið hvað blóm­leg­astur í gegnum árin en húsið hálf tómt. „Hér átti að vera sviðs­lista­há­tíð í gangi, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár