Níu barna faðirinn frá Gaza, Ayyad Saleh Abdulla Haday, er fæddur 1979 og er einn af þeim tæplega 600 einstaklingingum sem hafa sótt hér um alþjóðlega vernd á fyrstu 10 mánuðum ársins. Flestir sem komið hafa undanfarið eru frá Írak og Pelestínu eins og Ayyad, og koma hingað með flugi frá löndum innan Schengen. Börnin hans níu eru fædd á 18 ára tímabili, sú elsta er fædd árið 2000, ein af fimm dætrum, sú yngsta er bara tveggja ára fædd 2018. Drengirnir eru fjórir. Atvinnuleysi meðal ungs fólks á Gaza svæðinu er um og yfir 70%.
Athugasemdir