Meira en 42 þúsund sjálfboðaliðar með lögfræðimenntun hafa verið skipaðir til að fylgjast með framvæmda kosninganna og því að allt fari fram með löglegum og eðlilegum hætti.
Kristen Clarke, talsmaður hópsins og framkvæmdastjóri Lawyers' Committee for Civil Rights Under Law, segir að sér hafi ekki borist neinar vísbendingar um skipulagt kosningasvindl eða tilraunir til að halda kjósendum frá kjörstað eða ógna þeim. "Á þessu stigi málsins virðist allt benda til þess að kosningarnar séu að fara eðlilega fram," segir Clarke í samtali við CNN.
"Þær ábendingar sem við höfum fengið snúa að staðbundnum og einangruðum vandamálum en ekki kerfislægum vanda."
Þó hefur orðið einhver misbrestur á því að bjóða upp á tungumálaaðstoð fyrir kjósendur sem ekki haf ensku að móðurmáli. Þá var kvartað undan miklum og "ógnandi" viðbúnaði lögregl við kjörstaði í Colorado.
Athugasemdir