Leifur í morgunroða, en það er gömul þjóðtrú að morgunroðinn væti en kvöldröðinn bæti, en þurrkur er talinn til bóta. Styttan af þessum Dalamanni, sem var fæddur um 980, var gefin okkur af Bandaríkjamönnum í tilefni Alþingishátíðarinnar fyrir 90 árum. Höfundur styttunnar er Alexander Stirling Calder, sem vann samkeppni um að endurskapa Leif árið 1929, til að gefa okkur ári síðar.
Athugasemdir