Mynd: Shutterstock

Líf á bæði Mars og Venus?

Tvær nýjar rann­sóknir, sem birtar voru á dög­unum, sýna auknar líkur á að líf sé að finna á öðrum hnöttum í sól­kerf­inu. Nýju geim­fari er ætlað að svara lyk­il­spurn­ingum um lofts­lag Venusar innan tveggja ára og á Mars telja vís­inda­menn sig hafa fundið salt­vatn í miklu magni neð­an­jarðar.

Um miðjan sept­em­ber birt­ist rann­sókn í vís­inda­rit­inu Nature Astronomy þar sem leiddar voru líkur að því að örverur gætu lifað í fljót­andi skýjum hátt yfir yfir­borði Venusar. Plánetan er að mörgu leyti svipuð jörð­inni hvað varðar stærð og fjar­lægð frá sólu. Við sjálft yfir­borðið er hita­stigið hins vegar að jafn­aði um 465 gráður og loft­þrýst­ingur 90 sinnum meiri en á jörð­inni. Það er því ólík­legt að nokkuð sem við myndum kalla hefð­bundið líf geti þrif­ist þar. Allt líf sem við þekkjum á jörð­inni byggir á vatni og kolefna­sam­böndum en við slíkan hita og þrýst­ing eru ekki efna­fræði­legar aðstæður til að mynda venju­leg líf­ræn efni.

Rann­sóknin sýndi hins vegar fram á að í loft­hjúpi Venusar er að finna fos­fín gas sem á jörð­inni er fram­leitt af örverum í and­rúms­loft­inu. Vöknuðu þá spurn­ingar um hvernig gasið gæti verið til komið og áhuga­verð­asta skýr­ingin er án efa sú að ofar í loft­hjúpnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi
Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár