Glataði nánast öllu í kakkalakkafaraldri í Laugardalnum

Eliverta Panariti þurfti að flýja íbúð í Laug­ar­dalnum vegna plágu af kakkalökkum. Lög­ráða­maður leigu­sala heldur leigu­trygg­ingu hennar eftir þar sem hún skildi mögu­lega smit­aða búslóð eftir.

„Íbúðin er ekki laus við skor­dýrin, þau eru enn fleiri núna ef eitt­hvað er. Ég hef gist á hót­eli í þrjár nætur. Þú ert að stressa mig og barnið mitt út. Ég vil flytja úr þess­ari íbúð eins fljótt og hægt er.“

Svona hefj­ast skila­boð sem Eliverta Panariti sendi lög­ráða­manni leigu­sala síns þann 5. júlí síð­ast­lið­inn, en fjórum dögum fyrr kom upp kakka­lakka­f­ar­aldur í íbúð sem hún leigði á 12. hæð í Laug­ar­dalnum. Hún hefur síðan þá flutt út en fær ekki leigu­trygg­ingu sína end­ur­greidda.

Lög­ráða­maður leigusal­ans segir að hún þurfi að rýma íbúð­ina en Eliverta ber fyrir sig að búslóðin sé ónýt og full af skor­dýra­eggjum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem kakka­lakkar fyr­ir­finn­ast í blokk­inni. Þegar blaða­maður fékk að sjá íbúð­ina voru enn kakka­lakka­hræ og lif­andi skor­dýr sjá­an­leg þrátt fyrir heim­sóknir mein­dýra­eyða. Líf­fræð­ingur og mein­dýra­eyðir stað­festi að á myndum úr heim­sókn­inni mætti sjá aust­ræna kakka­lakka, úrgang þeirra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár