Mynd: Heiða Helgadóttir

Þetta lætur mig ekki í friði

Jónas Ingi­mund­ar­son píanó­leik­ari er hættur að koma fram opin­ber­lega en þrátt fyrir 20 ára bar­áttu við krabba­mein er hann með ýmis járn í eld­inum. Hann stendur ásamt öðrum að baki Beethoven-hátíð í sam­vinnu við Salinn í sept­em­ber og átti hug­mynd­ina að tón­leikum í Hörpu þar sem íslenska ein­söngslag­inu verður gert hátt undir höfði.

Jónas Ingi­mund­ar­son er án nokk­urs vafa einn af helstu tón­list­ar­mönnum Íslend­inga en í ára­tugi starf­aði hann sem píanó­leik­ari, kenn­ari og kór­stjóri. Hann er nú sestur í helgan stein og á fal­legu heim­ili hans og eig­in­konu hans, Ágústu Hauks­dóttur tón­list­ar­kenn­ara, stendur svartur og gljá­andi flyg­ill. Tugir geisla­diska og nótna­bóka standa í röðum í hillum.

„Hér snýst allt um tón­list. Fyrir okkur Ágústu er lífið tón­list. Tón­listin tekur við þegar maður hættir að geta tjáð sig í orðum. Það er eitt af því fal­lega við hana. Boð­skap­ur­inn er það sem skiptir máli; feg­urðin og þau elem­ent sem hrífa. Þetta lætur mig ekki í friði.“

 Jónas segir að tón­listin sé lífs­kraft­ur­inn í huga sínum. „Ég finn í tón­list­inni löngun til að lifa. Ég gæti ekki hugsað mér lífið án tón­listar. 

Það er svo sárt – og þess vegna er ég í músík – hve margir þeir eru sem virð­ast neita sér um að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár