Grínast með gengisfellingu afsökunarbeiðninnar

Í uppi­stands­sýn­ing­unni VHS biðst for­láts leika þre­menn­ing­arnir sér með athöfn­ina að baki þess að biðj­ast afsök­unar. Þeir ræða við Stundina um grín og völd og nýlega afsök­un­ar­beiðni Péturs Jóhanns.

Grínast með gengisfellingu afsökunarbeiðninnar
VHS biðst for­láts Uppi­stand­ar­arnir segja grín sem byggir á ras­isma vera úrelt.

Uppi­stands­hóp­ur­inn VHS frum­sýndi um dag­inn sýn­ingu sem talar óvart beint inn í mál­efni líð­andi stundar. Hópurinn segir að þema sýn­ing­ar­innar, VHS biðst for­láts, hafi þró­ast úr því að vera ein­falt grín um óhöpp yfir í að fjalla um inni­halds­lausar afsök­un­ar­beiðnir frægs og valda­mik­ils fólks.

„Við vorum búnir að taka eftir þó nokkrum afsök­un­ar­beiðnum þegar við vorum að þróa hug­mynd­ina,“ segir Stefán Ingvar Vig­fús­son. „Við fórum að pæla í geng­is­fell­ingu afsök­un­ar­beiðn­innar og hvernig hún er gjarnan sett fram sem hálf­kák. Fólk segir „sorrí“ þegar það tekur gríð­ar­leg feil­spor, og þylur upp ákveðna athöfn. Okkur fannst fyndið að nota þessa ofur-form­legu afsök­un­ar­beiðni fyrir minni atvik.“

Um það leyti sem VHS fór að kynna nýju sýn­ing­una var einmitt ein slík afsök­un­ar­beiðni í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, en það var hans Péturs Jóhanns Sig­fús­sonar á rasískri eft­ir­hermu sem var fest á filmu. Hann sagði að honum þætti leitt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár