Umhverfisáhrif smávirkjunar sýna veikleika rammaáætlunar

Skipu­lags­stofnun segir virkjun í Hverf­is­fljóti munu raska merku svæði Skaft­ár­elda­hrauns. Meta ætti smá­virkj­anir inn í ramma­á­ætlun þar sem þær geti haft nei­kvæð umhverf­is­á­hrif.

Umhverfisáhrif smávirkjunar sýna veikleika rammaáætlunar
Hverf­is­fljót Skipu­lags­stofnun telur fyr­ir­hug­aða virkjun sýna fram á veik­leika ramma­á­ætl­unar. Mynd: Zairon / CC BY-SA (https://creativecommons.org/licenses/by-sa/3.0)

Fyr­ir­huguð smá­virkjun í Hverf­is­fljóti í Skaft­ár­hreppi mundi hafa nei­kvæð áhrif á umhverfið og ferða­þjón­ustu. Áformin sýna fram á veik­leika ramma­á­ætl­unar þegar kemur að smá­virkj­unum. Þetta er nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar í umhverf­is­mati sem stofn­unin birti í gær.

„Ljóst er að fyr­ir­huguð virkjun mun hafa nei­kvæð áhrif á Skaft­ár­elda­hraun. Skaft­ár­eldar í Laka­gígum voru eitt mesta eld­gos á sögu­legum tíma á jörð­inni og Skaft­ár­elda­hraun er annað af tveimur stærstu hraun­gosum sem runnið hafa á jörð­inni á sögu­legum tíma,“ segir í mati stofn­un­ar­innar. „Vernd­ar­gildi þess bæði á lands­vísu og heims­vísu er hátt og hefur umtals­verða sér­stöðu.“

Fram­kvæmda­að­ili virkj­un­ar­innar er Ragnar Jónsson, ábú­andi á Dals­höfða. Virkj­unin í Hverf­is­fljóti yrði 9,3 MW að afli og telst til svo­kall­aðra smá­virkj­ana sem að jafn­aði þurfa ekki að fara í umhverf­is­mat. Virkj­unin yrði með 800 metra langri og 1 til 3 metra hárri stíflu, 2,3 kíló­metra langri þrýsti­pípu, um 6,6 kíló­metra löngum aðkomu­vegi, um 750 fer­metra stöðv­ar­húsi og aðrennslis- og frá­rennsl­is­skurðum.

„Vernd­ar­gildi þess bæði á lands­vísu og heims­vísu er hátt og hefur umtals­verða sér­stöðu“

Skipu­lags­stofnun telur að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð­syn fyrir röskun á Skaft­ár­elda­hrauni. Þá eru fram­kvæmd­irnar fyr­ir­hug­aðar innan Kötlu jarð­vangs sem hefur hlotið við­ur­kenn­ingu UNESCO. Óhætt sé að full­yrða að Skaft­ár­elda­hraun sé meðal merk­ustu jarð­minja innan hans. „Í ljósi sér­stöðu Skaft­ár­elda­hrauns verður að gera kröfu um að sýnt sé fram á það með afdrátt­ar­laus­ari hætti í skipu­lags­gerð vegna fram­kvæmda­á­for­manna og áður en kemur til leyf­is­veit­inga.“

Núpa­hraun, sem verður fyrir tals­verðu raski vegna ýmissa fram­kvæmda­þátta, nýtur einnig sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd. „Skipu­lags­stofnun telur að áhrif fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda á jarð­mynd­anir verði veru­lega nei­kvæð og telur að í ljósi þess sem rakið er hér að framan þurfi að skoða vel hvort það rask á Skaft­ár­elda­hrauni sem virkj­un­inni fylgi sé ásætt­an­legt þegar kemur að frek­ari skipu­lags­gerð vegna fram­kvæmda­á­for­manna og áður en kemur að því að veita leyfi fyrir fyr­ir­hug­aðri fram­kvæmd.“

Átti áður að vera stærri en smávirkjun

Þá telur Skipu­lags­stofnun að sjón­ræn áhrif fram­kvæmd­anna muni hafa bein áhrif á upp­lifun af svæð­inu og eru fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir að mati Skipu­lags­stofn­unar lík­legar til að hafa nei­kvæð áhrif á úti­vist og ferða­þjón­ustu þar sem upp­lifun ferða­manna kemur til með að breyt­ast á svæð­inu. „Óbyggðir lands­ins eru mik­il­væg auð­lind fyrir ferða­þjón­ustu, bæði sem áfanga­staður ferða­manna og sem ímynd Íslands. Með hlið­sjón af þessu telur Skipu­lags­stofnun að fram­kvæmdin sé lík­leg til að hafa tals­verð nei­kvæð áhrif á ferða­þjón­ustu og úti­vist.“

„[...] veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og til­efni hefði verið til að meta með öðrum virkj­un­ar­kostum í ramma­á­ætlun“

Skipu­lags­stofnun telur virkj­un­ar­á­formin sýna fram á veik­leika ramma­á­ætl­unar. Áformin eiga sér nokkra sögu og stóð upp­haf­lega til að reisa 15 MW virkjun, en núna hefur þeim verið breytt þannig að virkj­unin sé aðeins rúm 9 MW. „Allir virkj­un­ar­kostir, 10 MW og stærri, sæta heild­stæðri grein­ingu og mati verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar sam­kvæmt lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun,“ segir í mati stofn­un­ar­innar. „Í ramma­á­ætlun fer fram mik­il­væg grein­ing og sam­an­burður á fýsi­leika ólíkra virkj­un­ar­kosta á víðum grund­velli. Sú fram­kvæmd sem hér er til umfjöll­unar og for­saga hennar sýna veik­leika þess að miða við upp­sett afl sem við­mið um það hvaða fram­kvæmdir skulu teknar fyrir í ramma­á­ætlun. Umfang fyr­ir­hug­aðar 9,3 MW virkj­unar í Hverf­is­fljóti er að mestu sam­bæri­legt fyrri áformum um 15 MW virkjun. Um er að ræða fram­kvæmd sem mun að mati Skipu­lags­stofn­unar hafa veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og til­efni hefði verið til að meta með öðrum virkj­un­ar­kostum í ramma­á­ætlun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Virkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra tilraun“ til sátta
GreiningVirkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra til­raun“ til sátta

Ráðherra orku- og umhverf­is­mála ætl­aði ekki að ganga gegn til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni að flokkun átta virkj­un­ar­kosta. Tillagan var ekki afgreidd úr rík­is­stjórn þar sem ráð­herrar Vinstri grænna töldu að afmarka þyrfti virkj­ana­kosti sem lagt var til að vernda. Í stað þess að leiða ráð­herra flokk­anna til sam­ráðs um málið sleit for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.
Leggja Zephyr skýrar línur varðandi áform um risavaxið vindorkuver
FréttirVirkjanir

Leggja Zephyr skýrar línur varð­andi áform um risa­vaxið vind­orku­ver

Vind­orku­ver sem áformað er á Fljóts­dals­heiði yrði líkt og aðrar slíkar virkj­anir án for­dæma á Íslandi en sker sig að auki úr að því leyti að upp­sett afl þess yrði tvö­falt meira en í öðrum fyr­ir­hug­uðum vind­orku­verum. „Hér er því um að ræða mjög umfangs­mikla fram­kvæmd sem krefst mik­ils fjölda vind­mylla og getur haft mikil umhverf­is­á­hrif í för með sér,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á verk­efn­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár