Vilja átak gegn hættulegu húsnæði

Flokkur fólks­ins vill vit­und­ar­vakn­ingu um bruna­varnir í kjöl­far brun­ans við Bræðra­borg­ar­stíg. Fólk sem leigi ósam­þykktar íbúðir þekki oft ekki rétt­indi sín.

Vilja átak gegn hættulegu húsnæði
Elds­voð­inn við Bræðra­borg­ar­stíg Flokkur fólks­ins vill vit­und­ar­vakn­ingu hjá almenn­ingu um bruna­varnir. Mynd: Hlynur Helgi Hallgrímsson

Flokkur fólks­ins vill að Reykja­vík­ur­borg ráð­ist í átak gegn hættu­legu hús­næði í borg­inni með áherslu á að efla bruna­varnir í eldri húsum borg­ar­innar og aukið eft­ir­lit með ósam­þykktu íbúð­ar­hús­næði.

Kolbrún Bald­urs­dóttir borg­ar­full­trúi lagði til­lög­una fram á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs á mið­viku­dag. Lagt er til að slökkvi­liðs­stjóri og bygg­ing­ar­full­trúi skipu­leggi og sjái um fram­kvæmd aðgerða. „Harm­leik­ur­inn sem átti sér stað þegar kvikn­aði í illa búnu hús­næði á Bræðra­borg­ar­stíg átti sér aðdrag­anda,“ segir í til­lög­unni. „Aðbún­aður í hús­inu hafði áður komið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Í þessu til­viki var um að ræða hús­næði sem nýtt var til útleigu umfram það sem eðli­legt getur talist þrátt fyrir að aðeins væri einn bruna­út­gangur á hús­inu.“

Kolbrún bendir á að breyt­ingar hafi verið gerðar á hús­inu án til­skil­inna leyfa. Í slíkum til­vikum fari ekki fram skoðun eft­ir­lits­manna á fyr­ir­hug­uðum teikn­ingum og örygg­is­mat. „Það skiptir máli að eft­ir­lit með aðbún­aði og bruna­vörnum sé ekki aðeins virkt á fram­kvæmd­ar­stig­inu. Það þarf að efla frum­kvæð­is­eft­ir­lit slökkvi­liðs­stjóra og bygg­ing­ar­full­trúa. Lagt er jafn­framt til að fag­að­ilar greini hvað þarf að efla í eft­ir­liti með bruna­vörnum og aðbún­aði mann­virkja og hvort þörf sé á frek­ari eft­ir­lits­heim­ildum eða auknum mann­afla eða fjár­magni í verk­efnið.“

Kolbrún Bald­urs­dóttirFlokkur fólks­ins vill efla frum­kvæð­is­eft­ir­lit.

Flokkur fólks­ins kallar eftir vit­und­ar­vakn­ingu meðal almenn­ings, sér­stak­lega fólks á leigu­mark­aði, um bruna­varnir og aðbúnað. „Þá er mikið um það að fólk á leigu­mark­aði neyð­ist vegna fátæktar að leigja íbúðir í ósam­þykktu hús­næði,“ segir í til­lög­unni. „Þessar íbúðir þarf að athuga sér­stak­lega. Það er nauð­syn­legt að auka fræðslu til almenn­ings um hvaða kröfur íbúðir þurfi að upp­fylla til að þær telj­ist öruggar og að leigu­takar eigi rétt á því að krefj­ast þess að leigu­sali ráð­ist í þessar úrbætur. Stór hluti þeirra sem leigja ósam­þykktar íbúðir eru af erlendu bergi brotnir og þekkja ekki sín rétt­indi í þessum efnum eða hræð­ast það að missa hús­næði sitt ef þeir gera yfir­völdum við­vart. Það þarf að ná til þessa fólks og fræða þau um rétt­indi sín og hve alvar­legt það getur verið ef aðbún­aði og bruna­vörnum er ábóta­vant.“

Til­lög­unni var vísað til borg­ar­ráðs til með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bruninn á Bræðraborgarstíg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár