Engeyingar og fleiri að baki smávirkjunum víða um land

Franski olíu­ris­inn Total á fjórð­ungs­hlut í raf­orku­fyr­ir­tæki sem lyk­il­menn úr GAMMA og kjörnir full­trúar úr Sjálf­stæð­is­flokknum koma að. James Ratcliffe seldi fyr­ir­tæk­inu virkj­un­ar­rétt sinn í Þverá. Vara­þing­maður segir virkjun árinnar munu rústa ósnort­inni nátt­úru.

Engeyingar og fleiri að baki smávirkjunum víða um land
Benedikt Ein­ars­son og Einar Sveins­son Benedikt er stjórn­ar­for­maður Arctic Hydro, en hann situr einnig í stjórn fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis Eng­ey­inga, Kynn­is­ferða. fjöldi kjör­inna full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru í hlut­hafa­hópi Arctic Hydro.

Franskur olíu­risi, Eng­ey­ingar, fyrr­ver­andi efna­hags­ráð­gjafi fjár­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi stjórn­endur úr GAMMA eru á bak við félag sem stendur að smá­virkj­unum víða um land. Orku­stofnun hefur lagt áherslu á upp­bygg­ingu slíkra virkj­ana und­an­farin ár til að efla raf­orku­ör­yggi í dreifðum byggðum.

Félag þess­ara aðila heitir Arctic Hydro og er með fjölda virkj­ana í vinnslu sem flestar telj­ast til smá­virkj­ana. Eitt þess­ara verk­efna er Þver­ár­virkjun í Vopna­firði sem verður 6 MW að afli. Vopna­fjarð­ar­hreppur vinnur nú að breyt­ingum á skipu­lagi vegna hennar, en nið­ur­staða frum­mats­skýrslu var sú að áhrif fram­kvæmd­ar­innar á ásýnd og gróður yrðu nokkuð nei­kvæð, sem og stað­bundin áhrif á jarð­mynd­anir og áhrif á vatna­líf í Þverá. Önnur umhverf­is­á­hrif voru talin óveru­leg.

„Í raun­inni hefur maður verið með var­ann á frá upp­hafi því saga sveit­ar­stjórna og hrepps­nefnda á lands­byggð­inni er þannig að það koma menn að sunnan sem vilja virkja eða gera eitt­hvað annað og þá segja allir já og …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Virkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra tilraun“ til sátta
GreiningVirkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra til­raun“ til sátta

Ráðherra orku- og umhverf­is­mála ætl­aði ekki að ganga gegn til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni að flokkun átta virkj­un­ar­kosta. Tillagan var ekki afgreidd úr rík­is­stjórn þar sem ráð­herrar Vinstri grænna töldu að afmarka þyrfti virkj­ana­kosti sem lagt var til að vernda. Í stað þess að leiða ráð­herra flokk­anna til sam­ráðs um málið sleit for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.
Leggja Zephyr skýrar línur varðandi áform um risavaxið vindorkuver
FréttirVirkjanir

Leggja Zephyr skýrar línur varð­andi áform um risa­vaxið vind­orku­ver

Vind­orku­ver sem áformað er á Fljóts­dals­heiði yrði líkt og aðrar slíkar virkj­anir án for­dæma á Íslandi en sker sig að auki úr að því leyti að upp­sett afl þess yrði tvö­falt meira en í öðrum fyr­ir­hug­uðum vind­orku­verum. „Hér er því um að ræða mjög umfangs­mikla fram­kvæmd sem krefst mik­ils fjölda vind­mylla og getur haft mikil umhverf­is­á­hrif í för með sér,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á verk­efn­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár