Fönguðu ógnvekjandi fegurð tómarúmsins

Andri Snær Magnason og Anní Ólafs­dóttir festu á filmu þá ein­stöku stöðu sem skap­að­ist í sam­komu­banni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins í nýrri heim­ild­ar­mynd. Apausalypse, eða Tídægra, er nokk­urs konar sneið­mynd af hug­myndum og hug­ar­á­standi fólks.

Síðustu vikur hafa þau Andri Snær Magnason og Anní Ólafs­dóttir unnið saman að list­rænni heim­ilda­mynd, en hug­myndin kvikn­aði í sam­komu­bann­inu sem lagt var á vegna kór­óna­veirunnar. „Okkur lang­aði svo að fanga tómið, og við fórum að stað að hugsa um hvernig við gætum það. Hvernig föngum við ekk­ert? Þessa pásu.“

Til stóð að frum­sýna heim­ilda­mynd þeirra, Þriðji póll­inn, þann 27. mars en sökum sam­komu­banns er það eina sem minnir á til­ætl­aða frum­sýn­ingu stórt plkat sem hangir á Háskóla­bíói. Anní segir að þegar hún sér plakatið sé það „eins og að líta inn í hlið­stæðan veru­leika“. Andri Snær gant­ast með að í þeim veru­leika væru þau núna að fara í gegnum runu af „jæja“-við­tölum og bregð­ast við vel­gengni heim­ilda­mynd­ar­innar. Í raun­veru­leik­anum varð atburða­rásin hins vegar allt önnur, en Andri segir að það hefði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu