A-Dash hóp­ur­inn Þær Eva Ísleifs­dóttir, Noemi Nieder­hauser, Zoe Hatziyannaki og Catriona Gallag­her mynda A-Dash hóp­inn sem gerði upp sögu­frægt hús í Aþenu og breytti því í frjótt lista- og verk­efna­rými. Mynd: Angelos Giotopoulos

Sagan af húsinu í Aþenu sem listamenn lífguðu við

Sögu­frægt hús í Exarchia-hverf­inu í Aþenu hafði verið autt og yfir­gefið í meira en fimm ár þegar fjórir alþjóð­legir lista­menn tóku sig til og gerðu það upp. A-Dash hóp­ur­inn hefur hýst á þriðja tug lista­manna og haldið fjölda sýn­inga síðan þá. Jón Bjarki Magn­ús­son ræddi við þær Zoe Hatziyannaki og Evu ísleifs­dóttur um verk­efnið sem mun senn ljúka í núver­andi mynd. (Ljósmynd: Angelous Giotopoulos)

Á horni gatn­anna Asklipiou og Isavron í hverf­inu Exarchia í mið­borg Aþenu stendur tveggja hæða hús í nýklass­ískum stíl. Það lætur ekki mikið fyrir sér fara enda tölu­vert lágreist­ara en bygg­ing­arnar í kring – hvítt með rauðu hellu­lögðu hús­þaki og gömlum hlerum fyrir gluggum. Á und­an­förnum árum hafa alþjóð­legir mynd­list­ar­menn átt hérna athvarf fyrir verk­efni sín og hugð­ar­efni. Það iðar allt af lífi þegar best lætur og bak­garð­ur­inn fyllist af fólki víðs­vegar að úr heim­inum, sem er komið til að virða fyrir sér nýj­ustu mynd­list­ar­sýn­ing­una þá og þá stund­ina. Umræðu­efnið eft­il­vill nýjasti skúlp­t­úr­inn, gjörn­inga­lista­verkið sem var að klár­ast, eða bara sú spenn­andi og skap­andi orka sem er á sveimi í Aþenu.

Húsið var reist fyrir um 130 árum síðan, árið 1890, og hefur þjónað ýmsum og ólíkum til­gangi síðan þá. Síðast var þarna kín­verskur veit­inga­staður til húsa eða allt til árs­ins 2010 þegar efna­hags­kerfi Grikk­lands rið­aði til falls. Eigendur stað­ar­ins yfir­gáfu húsið í flýti án þess einu sinni að greiða van­goldna reikn­inga og það stóð autt og yfir­gefið árin á eftir. Þrátt fyrir að húsið væri friðað þá höfðu hús­eig­endur hrein­lega ekki efni á að halda því við, svo það drabb­að­ist niður með tím­anum. Hefði hópur alþjóð­legra lista­kvenna ekki tekið sig til og komið þar á fót sér­stöku verk­efna­rými, væri það eflaust ennþá í algjörri nið­ur­níðslu.

Íslenska mynd­list­ar­konan Eva Ísleifs­dóttir er ein þeirra fjög­urra lista­kvenna sem standa að lista­hópnum A-Dash, sem hefur rekið lista­rýmið og res­idensíu í umræddu húsi síð­ast­liðin ár. Verk­efnið má rekja aftur vinnu­stofu­dvalar Evu í Aþenu í upp­hafi árs 2015, þar sem hún kynnt­ist sviss­nesku lista­kon­unni Noemi Nieder­hauser. Þær náðu mjög vel saman, kol­féllu fyrir borg­inni og sóru þess eið að snúa aftur í þeim til­gangi að koma á fót verk­efna­rými. Stuttu síðar bætt­ust þær Zoe Hatziyannaki og Catriona Gallag­her í hóp­inn, og áður en þær vissu af höfðu hug­myndir þeirra fundið sér far­veg í hinu sögu­fræga húsi. Síðan þá hefur A-Dash hýst á þriðja tug alþjóð­legra lista­manna og haldið fjölda sýn­inga. Ég hitti þær Evu og Zoe í Aþenu og ræddi við þær um verk­efnið sem mun senn ljúka í núver­andi mynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár