Tóm síki Við brott­hvarf ferða­manna og aflokun sam­fé­lags­ins breytt­ist lit­ur­inn á sjónum í síkjum Feneyja. Mynd: Gabriele Catania og Valentina Saini

Skeyti frá Feneyjum: Gondólarnir eru hættir að sigla

Í Feneyjum er skelfingar­ástand vegna kóróna­veirunnar og borgar­búar óttast að ferðamanna­iðnaðurinn, lífæð borgarinnar, muni aldrei ná sér. Blaða­mennirnir Gabriele Catania og Valentina Saini ræddu við borgarbúa fyrir Stundina, meðal annars mann sem smitaðist af kóróna­veirunni og segist hafa hágrátið og liðið vítiskvalir í veikindunum.

Ráðvilltir mávar ráfa um torg og stræti borgarinnar. Hér er ekkert fyrir þá að fá; túristar víðs fjarri og allar rusla­tunnur tómar. Það eru aðeins nokkrir dagar síðan Feneyjar voru settar á lista yfir hááhættusvæði og borgin er aðeins skuggi af því sem hún var áður. Borgin sjálf er nú vofa, líkt og þær sem sagðar eru valda reim­leikum í fornum höllum hennar.

Hvarf túristanna, og flests annars fólks, er vegna Covid-19 veirunnar. Kóróna­veiran hefur verið sérstak­lega skæð á Ítalíu, ekki síst í norður­hluta landsins. Í Lombardia eru meira en 12.000 skráð tilfelli, í Emilia-Romagna rúmlega 3.400, í Veneto tæplega 2.500. Hér í Feneyjum hafa 378 verið greindir með smit og 45 þeirra eru á gjörgæslu. Það er hæsta hlutfall í þessum hluta landsins.

Eitt vanda­málið er að meðal­aldur borgarbúa hefur hækkað mjög og er nú um 49 ár. Það eru fleiri íbúar Feneyja yfir áttræðis­aldri en eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár