Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Jóhannes fær aðstoð úr sama sjóði og þekktustu uppljóstrarar samtímans

Upp­ljóstr­ar­inn Jó­hann­es Stef­áns­son fær fjár­hags­leg­an stuðn­ing frá sama sjóði í Banda­ríkj­un­um og Edw­ard Snowd­en og Chel­sea Mann­ing. Wiki­leaks er einn af stofn­end­um sjóðs­ins og seg­ir rit­stjóri síð­unn­ar, Krist­inn Hrafns­son, að Jó­hann­es sé í „þröngri stöðu“.

Jóhannes fær aðstoð úr sama sjóði og þekktustu uppljóstrarar samtímans
Wikileaks og PPLAAF styðja Jóhannes Jóhannes Stefánsson hefur notið aðstoðar frá sjóði sem Wikileaks kom að því að stofna og nú hafa samtökin PPLAAF bæst við. Mynd: Davíð Þór

Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari í Samherjamálinu í Namibíu, fær fjárhagslegan stuðning  úr sama alþjóðlega styrktarsjóðnum og tveir þekktustu uppljóstrar samtímans, Bandaríkjamennirnir Edward Snowden og Chelsea Manning. Sjóðurinn heitir The Courage Foundation og er uppljóstrunarsíðan Wikileaks einn af stofnendum hans. Þetta segir Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks.

Sjóðurinn er bandarískur og er samstarfsverkefni fjölda aðila en hann vinnur þvert á landamæri ríkja. Stuðningur The Courage Foundation snýst meðal annars um að greiða lögfræðiþjónustu fyrir Jóhannes. Sjóðurinn er fjármagnaður með fjárframlögum frá einstaklingum og lögaðilum. 

Auk Wikileaks og umrædds sjóðs hafa alþjóðlegu uppjóstrarasamtökin PPLAAF, samtök sem sérhæfa sig í að styðja við bakið á uppljóstrurum í Afríkuríkjum, veitt Jóhannesi fjárhagslegan stuðning. „Ég er endalaust þakklátur Kristni Hrafnssyni og Wikileaks fyrir stuðninginn. Þessi stuðningur er ómetanlegur. Og svo núna hefur PPLAAF bæst við og ég er þeim mjög þakklátur,“ segir Jóhannes. 

„ Jóhannes er í þröngri stöðu eins og á við um flesta uppljóstrara sem fórna miklu fyrir að koma sannleikanum á framfæri“

Styður Chelsea ManningSjóðurinn The Courage Foundation styður meðal annars Chelsea Manning, fyrrverandi bandarískan hermann, sem lak gögnum til Wikileaks, meðal annars myndbandi af skotárás úr herþyrlu í Írak. Manning hefur meira eða minna setið í fangelsi í Bandaríkjum frá þeirri uppljóstrun.

Erfið staða uppjóstrarans

Aðspurður segir Kristinn Hrafnsson að Jóhannes sé í erfiðri stöðu, líkt og yfirleitt gildir um uppljóstrara eins og hann, og því hafi Wikileaks ákveðið að styðja við bakið á honum. Uppljóstrarar geta oft og tíðum átt erfitt með að fá vinnu í kjölfar uppljóstrana sinna, lögfræðikostnaður þeirra getur verið mikill, þeir geta þurft að búa við það að þeim sé ógnað eða hótað og í einhverjum tilfellum geta þeir neyðst til að flýja land, líkt og til dæmis gildir um áðurnefndan Edward Snowden sem fékk pólitískt hæli í Rússlandi. 

Um þetta segir Kristinn Hrafnsson: „WikiLeaks átti hlut í að stofna Courage Foundation, samtök sem styðja við bakið á uppljóstrurum. Edward Snowden var sá fyrsti sem hlaut stuðning. Nú hefur sjóðuinn sem er skráður velgjörðarsjóður í Bandaríkjunum tekið Jóhannes upp á arma sína. Hann hefur þurft að undirbúa meðal annars lagalegar varnir því þó að hann hafi formlega stöðu uppljóstrara í Namibíu þarf hann að huga að sínum hagsmunum og líklegum lagalegum árásum annars staðar. Það kostar fé og Jóhannes er í þröngri stöðu eins og á við um flesta uppljóstrara sem fórna miklu fyrir að koma sannleikanum á framfæri,“ segir hann.

Jóhannes segist hafa verið undirbúinn 

Tveir og hálfur mánuður er liðinn frá því að Kveikur, Stundin, og síðar Al Jazeera, sögðu frá mútugreiðslum Samherja til ráðamanna í Namibíu í skiptum fyrir fiskveiðikvóta í landinu á árunum 2012 til 2019, á grundvelli gagna frá Wikileaks sem komu frá Jóhannesi.

Umfjallanirnar sýndu einnig fram á hvernig Samherji nýtir sér skattaskjól í viðskiptum sínum og hvernig norski stórbankinn DNB lokaði á viðskipti félags í skattaskjólinu Marshall-eyjum, Cape Cod FS, sem Samherji hafði notað til að greiða laun sjómanna sinna í Namibíu, vegna ófullnægjandi upplýsinga um endanlegan eiganda félagsins og vegna hættu á peningaþvætti. Málið er nú til rannsóknar í Namibíu, Íslandi og í Noregi.

Jóhannes segir að honum líði ágætlega um þessar mundir og að hann hafi verið undirbúinn undir afleiðingarnar af uppljóstrun sinni: „Það sem mér finnst skipta meira máli er fólkið í Namibíu sem þjáist. En mér líður bara ágætlega vel og það er ekkert sem að hefur komið á óvart í þessu ferli fram að þessu. Ég var búinn að kynna mér ágætlega vel hvað gæti verið í vændum og hvaða afleiðingar svona uppljóstrun gæti haft fyrir mig,“ segir Jóhannes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­regl­an á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönn­um á veg­um hér­aðssak­sókn­ara tókst á dög­un­um að end­ur­heimta á ann­að þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­son­ar og Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, á með­an sá síð­ar­nefndi var við störf í Namib­íu. Skila­boð­in draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðr­ir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

„Sam­herji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli“ - Op­ið bréf til for­sæt­is­ráð­herra frá Namib­íu

Slétt­um fjór­um ár­um eft­ir að ljóstr­að var upp um fram­ferði Sam­herja í Namib­íu kall­ar leið­togi namib­ísku stjórn­ar­and­stöð­unn­ar eft­ir því að ís­lensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands. Hundrað millj­óna rík­is­styrk­ur til Sam­herja vek­ur reiði í Namib­íu.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lög­mað­ur namib­ískra sjó­manna við Sam­herja: „Borg­ið það sem þið skuld­ið þeim“

Lög­mað­ur skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmd­ar voru bæt­ur vegna ólög­legr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, kall­ar eft­ir því að Ís­lend­ing­ar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namib­íu. Það stand­ist enga skoð­un að Sam­herji hafi ekki vit­að af mál­inu. For­stjóri Sam­herja lof­aði því að fyr­ir­tæk­ið myndi sjá til þess að stað­ið yrði við all­ar skuld­bind­ing­ar og sér­stak­lega hug­að að sjó­mönn­um sem starf­að hefðu fyr­ir fé­lag­ið.

Mest lesið

Sif Sigmarsdóttir
2
Pistill

Sif Sigmarsdóttir

Ert þú að eyði­leggja jól­in fyr­ir ein­hverj­um öðr­um?

Ár­ið er senn á enda. Ein þau tíma­mót sem und­ir­rit­uð fagn­aði á ár­inu var tutt­ugu ára brúð­kaup­saf­mæli. Af til­efn­inu þving­uð­um við hjón­in okk­ur til að líta upp úr hvers­dag­sam­str­inu og fara út að borða. Fyr­ir val­inu varð stað­ur­inn sem við borð­uð­um á þeg­ar við gift­um okk­ur, Ca­fé Royal, sögu­fræg­ur veit­inga­stað­ur á Re­g­ent Street í London, þar sem ekki ómerk­ari menn...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sif Sigmarsdóttir
3
Pistill

Sif Sigmarsdóttir

Ert þú að eyði­leggja jól­in fyr­ir ein­hverj­um öðr­um?

Ár­ið er senn á enda. Ein þau tíma­mót sem und­ir­rit­uð fagn­aði á ár­inu var tutt­ugu ára brúð­kaup­saf­mæli. Af til­efn­inu þving­uð­um við hjón­in okk­ur til að líta upp úr hvers­dag­sam­str­inu og fara út að borða. Fyr­ir val­inu varð stað­ur­inn sem við borð­uð­um á þeg­ar við gift­um okk­ur, Ca­fé Royal, sögu­fræg­ur veit­inga­stað­ur á Re­g­ent Street í London, þar sem ekki ómerk­ari menn...

Mest lesið í mánuðinum

„Ég var lifandi dauð“
2
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár