Meirihluti fjárlaganefndar hafnar beiðni um lögfræðiálit um ÍL-sjóð

Þing­maður Við­reisnar segir meiri­hluta fjár­laga­nefndar ekki vilja fá svör við því hvort vinnu­brögð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem varða ÍL-sjóð stand­ist lög.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur hafnað beiðni Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, að unnið verði lög­fræði­á­lit fyrir Alþingi um hvort vinnu­brögð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem snýr að því að setja ÍL-sjóð í þrot, stand­ist lög.

„Þau hafa ekki áhuga á því að fá slíkt álit,“ sagði Þorbjörg Sigríður í upp­hafi þing­fundar í dag þar sem hún bað um orðið um fund­ar­stjórn for­seta.

Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í síð­asta mán­uði að hann vildi semja við kröf­u­hafa ÍL-­­sjóðs um að þeir sam­­þykki að gefa eftir hluta eigna sinna. Líf­eyr­is­­sjóðir eiga um 75-80 pró­­sent allra skulda­bréfa sem útgefin eru af ÍL-­­sjóði og þeir þurfa því að taka mesta högg­ið, eigi til­­laga Bjarna að ganga upp. Tak­ist ekki að semja ætlar Bjarni að leggja fram frum­varp fyrir árs­­­lok sem felur í sér að ÍL-­­­sjóði verði slitið á næsta ári, skuldir hans látnar gjald­­­falla og með því myndi ein­­­föld rík­­­is­á­­­byrgð virkj­­­ast.

Bjarni hefur sjálfur látið vinna lög­fræði­á­lit um þessa fram­kvæmd. „Þar er vísað í neyð­ar­lögin sem blasir auð­vitað við að eiga ekk­ert skylt við þær aðstæður sem nú eru uppi í íslensku sam­fé­lagi,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

„Skraulegar og mjög kreatífar skýringar“

Hún segir að í fyrstu hafa verið vel tekið í ósk hennar um að lög­fræði­á­lit yrði unnið fyrir þingið. „En síðan fóru að heyr­ast alls konar skraut­legar og mjög krea­tífar skýr­ingar, að Alþingi ætti kannski ekki fyrir lög­fræði­á­liti, hefði kannski ekki burði til að láta vinna svo­leiðis álit og svo fram­vegis, það væri ekki tíma­bært að vinna álit þrátt fyrir að fjár­mála­ráð­herra hefði hótað laga­setn­ingu um þetta mál fyrir ára­mót. Ég held að skýr­ingin sé ein­fald­lega sú að meiri­hlut­inn á Alþingi vill ekki fá þau svör sem slíkt lög­fræði­á­lit myndi leiða í ljós,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

[links]ÍL-­­sjóður varð til á grund­velli laga sem sam­­þykkt voru árið 2019, og skiptu Íbúða­lána­­sjóði upp í tvennt. Hluti hans, sá sem snýr að fjár­­­mögnun á félags­­­legri upp­­­bygg­ingu á hús­næði, færð­ist í nýja stofn­un, Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­un. Skuldir og eignir vegna íbúða­lána á almennum mark­aði, sem rekja má að mestu til skulda­bréfa­út­­­gáfu á árinu 2004, voru sett í ÍL-­­sjóð. Skulda­bréf­in, sem eru með gjald­daga til 2044, eru ekki upp­­greið­an­­leg en lánin sem sjóð­­ur­inn veitti eru það hins veg­­ar.

Vandi ÍL-­­sjóðs er til­­kom­inn vegna þess að íbúða­lán bank­ans hafa verið greidd upp á miklum hraða, og eru nú ein­ungis um 20 pró­­sent af eignum sjóðs­ins, á meðan að enn þarf að þjón­usta skulda­bréf­in. Áætlað er að tap vegna þessa fyr­ir­komu­lags verði að óbreyttu 200 millj­­arðar króna.

Ekki einn stjórnarþingmaður í þingsal

Fleiri stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn tóku undir með þing­manni Við­reisnar. Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði mál­efni ÍL-sjóðs einnig snú­ast um orð­spor og orð­spors­á­hættu.

„Ég vil benda á að við erum nýbúin að taka hérna við skýrslu frá Rík­is­end­ur­skoðun þar sem er sér­stak­lega hnýtt í bæði stjórn­völd og þing­nefndir, það er meiri­hlut­ann í tveimur þing­nefndum, fyrir að van­meta orð­spors­á­hættu þegar teknar voru afdrifa­ríkar ákvarð­anir um hags­muni rík­is­sjóðs. Nú er svo sann­ar­lega til­efni til þess að fjár­laga­nefnd taki þetta mál sem varðar ÍL-sjóð upp að eigin frum­kvæði og látið vinna óháð lög­fræði­á­lit fyrir brota­brot af þeim fjár­munum sem eru undir í mál­inu sjálfu, athugum það, lög­fræði­á­lit um þessi áform fjár­mála­ráð­herra um að setja ÍL-sjóð í þrot með lögum og varpa þannig kostn­að­inum yfir á eig­endur líf­eyr­is­sjóð­anna,“ sagði Jóhann Páll.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði áhuga­leysi stjórn­ar­liða á starfi sínu sem snýr að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sorg­legt. „Það er pínu­lítið átak­an­legt að horfa á þingsal­inn núna. Það er ekki einn þing­maður stjórn­ar­flokk­anna í salnum, ekki einn,“ sagði Helga Vala.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, sagði það gjör­sam­lega óþol­andi að þurfa að koma síend­ur­tekið upp í pontu Alþingis til að ræða hvernig meiri­hlut­inn valtar yfir minni­hlut­ann í nefndum þings­ins, sama um hvaða nefnd ræðir.

Fjárlaganefnd ekki formlega með neitt mál í höndunum

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, kom síðar upp í pontu og sagði nefnd­ina ekki enn vera komna með neitt mál í hend­urnar frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Hún fór yfir það sem fram kom á fundi fjár­laga­nefndar. „Ég lét það líka fylgja þegar ég sagði þetta að ef við fengjum mál til okkar og þörf væri talin á því að fá eitt­hvert sér­stakt álit umfram það sem við værum með í hönd­unum þá myndum við að sjálf­sögðu verða við því. Leið­bein­ing­arnar eru þær því að við erum ekki form­lega með neitt mál í hönd­unum. Skýrslu var skilað til Alþingis og hún er ekki til umfjöll­unar inni í nefnd­inni sem slík.“

Jóhann Páll sagði for­mann fjár­laga­nefndar vera að hengja sig í forms­at­riði. „ Auðvitað getur nefndin tekið upp þetta mál að eigin frum­kvæði og kallað eftir lög­fræði­á­liti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ÍL-sjóður

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

„Þessi veg­ferð end­aði illa og varð þjóð­inni dýr­keypt“

Yfir lands­mönnum hangir vandi sem fæstir átt­uðu sig á að væri til staðar, og enn færri átt­uðu sig á hversu stór hann væri. Þar er átt við úrslausn hins svo­kall­aða ÍL-sjóðs, sem fyrir liggur að muni tapa 200 millj­örðum króna á núvirði. Einhver þarf að taka það tap á sig. Eins og stendur er það rík­is­sjóður, en rík­is­stjórnin reynir nú...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár