Lífeyrissjóðirnir segja áform Bjarna um ÍL-sjóð brjóta í bága við stjórnarskrá

Það stefnir í mikla hörku í hinu svo­kall­aða ÍL-sjóða máli. Líf­eyr­is­sjóðir hafa látið vinna fyrir sig lög­fræði­á­lit sem segir að sú laga­setn­ing sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur boðað til að spara rík­inu 150 millj­arða króna feli í sér eign­ar­nám.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Eyþór Árnason

Í lög­fræði­á­liti sem LOGOS hefur unnið fyrir fjóra af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins kemur fram að fyr­ir­huguð laga­setn­ing Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem á að fela í sér gjald­þrot eða sam­bæri­leg skulda­skil ÍL-sjóðs, fari í bága við stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Í áliti LOGOS kemur fram að slíkt inn­grip fæli í sér eign­ar­nám eða ann­ars konar skerð­ingu eign­ar­rétt­inda sem myndi skapa íslenska rík­inu bóta­skyldu gagn­vart þeim sem eiga skulda­bréf útgefin af sjóðnum. Þar eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir lang­fyr­ir­ferða­mestir, en þeir eiga um 80 pró­sent bréf­anna.

[links]Í lög­fræði­á­lit­inu kemur fram að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra beri beina ábyrgð á skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs eftir þær breyt­ingar sem urðu á Íbúða­lána­sjóði við laga­breyt­ingu árið 2019, en þá var sjóðnum skipt upp. Verk­efni stofn­un­ar­innar og lán­veit­ingar til íbúð­ar­hús­næðis sem skil­greind voru ein­göngu á félags­legum for­sendum voru flutt í nýja stofn­un, Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un. Skulda­bréfa­flokk­arnir og vanda­málin voru skilin eftir í sjóði sem fékk nafnið ÍL-­sjóð­ur. Eigið fé hans við stofnun var nei­kvætt um 180 millj­arða króna. Með því telur LOGOS að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi verið falin yfir­um­sjón með ÍL-sjóði. Í til­kynn­ingu frá líf­eyr­is­sjóð­unum fjórum segir að ÍL-sjóður telj­ist því ekki sér­stök und­ir­stofnun, heldur hluti ráðu­neyt­is­ins. „Þannig sé íslenska ríkið skuld­ari frekar en ábyrgð­ar­maður. Það sé jafn­framt í sam­ræmi við þau sjón­ar­mið að færa sjóð­inn undir A-hluta rík­is­reikn­ings frá ára­mótum. Samkvæmt þessu ber fjár­mála­ráð­herra beina ábyrgð á sjóðnum og skuld­bind­ingum hans að áliti LOGOS.“

Enn­fremur kemur fram í álit­inu að ákveði fjár­mála­ráð­herra að slíta sjóðnum með þeim afleið­ingum að kröfur á hendur þrota­bú­inu falli í gjald­daga muni íslenska ríkið ótví­rætt bera ábyrgð á núver­andi og fram­tíð­ar­skuld­bind­ingum sam­kvæmt skil­málum skulda­bréf­anna ásamt drátt­ar­vöxtum.

[adspot]Álitið var unnið fyrir Almenna líf­eyr­is­sjóð­inn, Frjálsa líf­eyr­is­sjóð­inn, Gildi líf­eyr­is­sjóð og Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna.

Ráðherra segist ætla að spara ríkissjóði 150 milljarða

ÍL-­­sjóður varð til á grund­velli laga sem sam­­þykkt voru árið 2019, og skiptu Íbúða­lána­­sjóði upp í tvennt. Hluti hans, sá sem snýr að fjár­­­mögnun á félags­­­legri upp­­­bygg­ingu á hús­næði, færð­ist í nýja stofn­un, Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­un. Skuldir og eignir vegna íbúða­lána á almennum mark­aði, sem rekja má að mestu til skulda­bréfa­út­­­gáfu á árinu 2004, voru sett í ÍL-­­sjóð. Skulda­bréf­in, sem eru með gjald­daga til 2044, eru ekki upp­­greið­an­­leg en lánin sem sjóð­­ur­inn veitti eru það hins veg­­ar.

Vandi ÍL-­­sjóðs er til­­kom­inn vegna þess að íbúða­lán bank­ans hafa verið greidd upp á miklum hraða, og eru nú ein­ungis um 20 pró­­sent af eignum sjóðs­ins, á meðan að enn þarf að þjón­usta skulda­bréf­in. Áætlað er að tap vegna þessa fyr­ir­komu­lags verði að óbreyttu 200 millj­­arðar króna.

Bjarni Bene­dikts­son boð­aði til blaða­manna­fundar í októ­ber þar sem hann sagð­ist ætla að spara rík­is­sjóði 150 millj­arða króna með því að annað hvort ná sam­komu­lagi við eig­endur skulda­bréf­anna um að gefa eftir eignir sín­ar, eða með því að knýja fram slit sjóðs­ins með laga­setn­ingu fyrir árs­lok. Þá yrði tap rík­is­sjóðs aðeins 47 millj­arðar króna, en ekki 200. Þessi áætlun byggði á lög­fræði­á­liti sem ráðu­neytið lét vinna fyrir sig sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að þetta væri ger­legt. Sá sem skrif­aði það álit er Jóhannes Karl Sveins­son lög­mað­ur. Samhliða var greint frá því að Steinþór Pálsson, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, hefði verið feng­inn sem milli­göngu­að­ili í sam­tali við eig­endur krafna á ÍL-sjóð. hann á að reyna að ná sam­komu­lag­inu við sjóð­ina.

[adspot]Líf­eyr­is­sjóðir sem eiga skulda­bréf útgefin af ÍL-sjóði áætla að sú leið sem Bjarni boð­aði muni kosta þá yfir 100 millj­arða króna. Tap eig­enda bréfa ÍL-sjóðs stafar af því þau voru verð­lögð miðað við 3,75 pró­sent verð­tryggða vexti út líf­tíma bréf­anna. Ef bréfin væru greidd upp miðað við stöðu þeirra í dag væri hægt að ávaxta þá fjár­muni um 1,7-1,8 pró­sent með kaupum á verð­tryggðum rík­is­skulda­bréfum. Í þessum mun felst áætlað tap eig­enda bréf­anna.

Þann 11. nóv­em­ber til­kynntu flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins að þeir hefði ákveðið að mynda sam­eig­in­lega vett­vang til að greina stöðu sjóð­anna vegna ÍL-­sjóðs. Hver og einn sjóður mun þó á end­anum taka sjálf­stæða ákvörðun um hvað hann vill gera í mál­inu.

Ekki hægt að bera saman við neyðarlögin

Í álit­inu sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa látið vinna fyrir sig er gerður sam­an­burður við hið svo­kall­aða Neyð­ar­laga­mál, sem er dómur Hæsta­réttar í máli sem sner­ist um neyð­ar­lögin svoköll­uðu. Þau voru sett í banka­hrun­inu og gerði inn­stæður að for­gangs­kröfum í þrotabú fall­inna banka. Laga­setn­ingin var grund­völluð á almanna­þörf. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að neyð­ar­lögin héldu.

Í álit­inu segir að þær aðstæður sem nú eru uppi séu lítt sam­an­burð­ar­hæfar við þær sem voru haustið 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi að mestu á nokkrum dögum. Þá hafi stór­felld hætta ógnað til­vist alls sam­fé­lags­ins vegna mik­ils og for­dæma­laus vanda. Inn­stæð­urnar sem undir voru þá hafi verið tvö­föld lands­fram­leiðsla. Þeir 150 millj­arðar króna sem rík­is­sjóður telur sig nú vera að spara nemi hins vegar 4,65 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu miðað við lok árs 2021. Nú sé ekk­ert skyndi­legt að ger­ast heldur sé staðan afleið­ing af ákvörð­unum rík­is­ins yfir lengri tíma. Engin dæmi hafi fund­ist um að til sam­bæri­legra aðgerða hafi verið gripið í 17 helstu ríkjum Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ÍL-sjóður

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

„Þessi veg­ferð end­aði illa og varð þjóð­inni dýr­keypt“

Yfir lands­mönnum hangir vandi sem fæstir átt­uðu sig á að væri til staðar, og enn færri átt­uðu sig á hversu stór hann væri. Þar er átt við úrslausn hins svo­kall­aða ÍL-sjóðs, sem fyrir liggur að muni tapa 200 millj­örðum króna á núvirði. Einhver þarf að taka það tap á sig. Eins og stendur er það rík­is­sjóður, en rík­is­stjórnin reynir nú...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár