„Það fer ekk­ert á milli mála að ábyrgðin er hjá rík­is­sjóð­i“

„Hvert er planið?“ spyr þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar fjár­mála­ráð­herra- og efna­hags­ráð­herra. Tilefnið er mál­efni ÍL-sjóðs, nú þegar fyrr­ver­andi for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu segir ríkið bóta­skylt fari ÍL-sjóður í þrot.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Skjáskot: Alþingi

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vill vita áform Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, varð­andi ÍL-sjóð, nú þegar Róbert Spanó, fyrr­ver­andi for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, hefur tekið undir lög­fræði­á­lit LOGOS sem líf­eyr­is­sjóðir létu vinna og segir hann ríkið bóta­skylt fari ÍL-sjóður í þrot.

„Hvað leggur hann til að gert verði? Er hann enn á því að hans hug­myndir gangi upp um að heim­ila gjald­þrota­skipti eða önnur sam­bæri­leg slit á ÍL-sjóði?“ spurði Helga Vala fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun.

Helga Vala sagði ríkið verða að standa skil á ábyrgð­inni á ÍL-sjóði með öllu því sem fylgir og geti ekki breytt því með laga­setn­ingu, „enda ekk­ert slíkt ástand sem heim­ilar setn­ingu ein­hvers konar neyð­ar­laga“.

Í lög­fræði­á­liti sem LOGOS hefur unnið fyrir fjóra af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins kemur fram að fyr­ir­huguð laga­setn­ing Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem á að fela í sér gjald­þrot eða sam­bæri­leg skulda­skil ÍL-­sjóðs, fari í bága við stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu. Í áliti LOGOS kemur fram að slíkt inn­grip fæli í sér eign­ar­nám eða ann­ars konar skerð­ingu eign­ar­rétt­inda sem myndi skapa íslenska rík­inu bóta­skyldu gagn­vart þeim sem eiga skulda­bréf útgefin af sjóðn­um. Þar eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir lang­fyr­ir­ferða­mest­ir, en þeir eiga um 80 pró­sent bréf­anna.

Í lög­fræði­á­liti sem Landslög unnu að beiðni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kemur fram að eigna­rétt­indi líf­eyr­is­sjóð­anna yrðu ekki skert ef ÍL-sjóður yrði settur í þrot þar sem þeir fengju kröfur sínar greiddar að fullu. Eina eigna­skerð­ingin væri töpuð ávöxtun til fram­tíðar.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir fengu í fram­hald­inu Róbert Spanó, fyrr­ver­andi for­seta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, til að fara yfir bæði lög­fræði­á­litin og segir hann kröfur líf­eyr­is­sjóð­anna í ÍL-sjóð varðar af eigna­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar. Ákveði ríkið að keyra sjóð­inn í þrot er það bóta­skylt gagn­vart kröfu­höfum sjóðs­ins, að mati Róberts.

Milligöngumaður á vegum ríkisins mun eiga í samskipti við eigendur bréfa

Bjarni benti á að ekki að er búið að leggja fram neitt frum­varp á þingi um slit ÍL-sjóð og sagði hann lög­fræði­á­litið LOGOS fullt af fyr­ir­vörum um hvers efnis líkt mögu­legt frum­varp yrði, þegar til þess kæmi.

Stjórn­völd hafa skipað milli­göngu­mann fyrir hönd rík­is­ins sem mun eiga í sam­skiptum við eig­endur bréfa í ÍL-sjóði. Til­gang­ur­inn, að sögn ráð­herra, er að reyna að „laða fram sam­eig­in­lega lausn sem myndi fela það í sér að þeir sem eiga kröfur á ÍL-sjóð myndu taka í raun og veru yfir eigna­safnið og við fengjum þannig í reynd upp­gjör á þessum skuld­bind­ingum.“

[links] „Það eina sem vakir fyrir mér sem fjár­mála­ráð­herra er að upp­fylla laga­skyldu mína um að tak­marka tjón rík­is­sjóðs vegna þeirrar ábyrgðar sem ríkið er í fyrir skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs,“ sagði Bjarni, sem furð­aði sig á fram­göngu margra þing­manna sem hann sagði vera i „ein­hvers konar kapp­hlaupi hér við fjár­mála­ráð­herr­ann“.

Bjarni sagði að hann væri aðeins að reyna að upp­fylla laga­skyldur sínar, „við að koma fram þeim sjón­ar­miðum í þing­inu að þetta sé allt saman ólög­mætt og rík­is­sjóður verði að taka á sig sem allra mesta tjón vegna þess hvernig Íbúða­lána­sjóður var smíð­aður á sínum tíma“.

„Fyrir hvern er þetta fólk að vinna sem talar svona? Er ekki bara lang­best að huga að atriðum sem geta varið stöðu rík­is­sjóðs lögum sam­kvæmt? Það er það sem fjár­mála­ráð­herr­ann er að reyna að gera,“ sagði Bjarni.

„Við skulum ekki beita þjóðina blekkingum“

Helga Vala gaf lítið fyrir svör Bjarna. „Við skulum ekki beita þjóð­ina blekk­ingum. Það hefur ekki verið lagt fram frum­varp en með þessu lög­fræði­á­liti er verið að taka af allan vafa um ábyrgð íslenska rík­is­ins vegna þess hvernig stjórn­ar­skráin er saman sett, vegna þess hvernig mann­rétt­inda­sátt­mál­inn er sam­an­settur.“

Hún sagði ráð­herra ekki geta skýlt sér á bak við milli­göngu­mann sem hann hefur sett í verkið við að reyna að koma á ein­hverjum samn­ingum. „Það er ekki í boði. Það er hans að taka ábyrgð á gjörðum sínum einu sinni. Við hljótum að gera þá kröfu að það sé hann sem sé hér í for­svari fyrir þetta. Það fer ekk­ert á milli mála að ábyrgðin er hjá rík­is­sjóði.“

Helga Vala ítrek­aði spurn­ingu sína til ráð­herra um hvað hann hyggst gera í mál­efnum ÍL-sjóðs.

Bjarni sagð­ist ekki vera að reyna að skýla sér á bak við milli­göngu­mann, þvert á móti. Málið væri hins vegar ekki ein­falt.

„Rík­is­sjóður er í ein­faldri ábyrgð fyrir skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs og ÍL-sjóður á ekki fyrir skuldum. Það er hins vegar ekki alveg aug­ljóst hvernig á að bregð­ast við þeirri stöðu og í því lög­fræði­á­liti sem hátt­virtur þing­maður er hér að túlka fyrir þing­heim þá er velt upp sjón­ar­miðum um það að það þurfi að vera mjög sterk rök til að grípa inn í og setja sjóð­inn í slit ef menn ætla að gera það með eign­ar­námi án þess að bætur komi fyrir,“ sagði Bjarni.

Það þýði hins vegar ekki, að hans mati, að rík­is­sjóður sé í fullri ábyrgð fyrir öllum skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs út líf­tíma allra krafna. „Þetta bara þýðir það ekki. Það er svo ein­falt. Þannig að við skulum bara sjá.,“ sagði Bjarni.

Hann sagð­ist fagna allri opin­berri umræðu um ÍL-sjóð. „Megi lög­fræði­á­litin verða sem flest og megi umræðan verða sem dýpst og við í fram­hald­inu taka ákvörðun með hags­muni rík­is­sjóðs að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ÍL-sjóður

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

„Þessi veg­ferð end­aði illa og varð þjóð­inni dýr­keypt“

Yfir lands­mönnum hangir vandi sem fæstir átt­uðu sig á að væri til staðar, og enn færri átt­uðu sig á hversu stór hann væri. Þar er átt við úrslausn hins svo­kall­aða ÍL-sjóðs, sem fyrir liggur að muni tapa 200 millj­örðum króna á núvirði. Einhver þarf að taka það tap á sig. Eins og stendur er það rík­is­sjóður, en rík­is­stjórnin reynir nú...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár