Lögregla heldur ekki sérstaklega utan um mál sem tengjast kynþáttamörkun

Kyn­þátta­miðuð lög­gæsla eða kyn­þátta­mörkun er ekki sér­stak­lega skráð hjá lög­reglu en hægt er að leita að slíkum málum í kerfi lög­reglu þar sem öll mál eru skráð. „Ekki er hægt að fara í slíka vinnu,“ segir í svari rík­is­lög­reglu­stjóra.

Lögreglan heldur ekki sérstaklega utan um mál þar sem kynþáttamörkun kemur við sögu.
Lög­reglan heldur ekki sér­stak­lega utan um mál þar sem kyn­þátta­mörkun kemur við sögu. Mynd: Bára Huld Beck

Lög­reglan heldur ekki sér­stak­lega utan um mál þar sem afskipti lög­reglu má mögu­lega rekja til kyn­þátta­mörk­unar (e. racial profil­ing), það er þegar kyn­þáttur og/eða húð­litur er not­aður til þess að skil­greina ein­stak­linga eða hópa fólks og mis­munum gagn­vart þeim rétt­lætt á þeim for­sendum.

Upp­lýs­ingar um slík mál, þar sem kyn­þátta­miðuð lög­gæsla eða kyn­þátta­mörkun hafi mögu­lega komið við sögu, er þó hægt að nálg­ast með leit í kerfi lög­reglu þar sem öll verk­efni lög­reglu eru skráð, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Það væri meðal ann­ars hægt að gera með því að leita að málum þar sem lög­regla hefur afskipti af ein­stak­lingi sem reyn­ist svo ekki vera sá ein­stak­lingur sem leitað er að, líkt og gerð­ist í apríl þegar lög­regla hafði í tvígang afskipti af ungum dreng vegna leitar að tví­tugum fanga sem strauk úr haldi lög­reglu við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur.

Ekki hægt að ráðast í þá vinnu að leita í allri málaskrá lögreglu

Í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans hvort haldið sé utan um mál þar sem kyn­þátta­mörkun komi við sögu segir að svo sé ekki. Eins og fyrr segir eru öll mál skráð í kerfi lög­reglu en upp­lýs­ingar um hör­und­s­lit þeirra sem lög­regla hefur afskipti af eru ekki mark­visst skráðar. Hægt er að setja slíkar upp­lýs­ingar í almennt texta­svæði „sé talin þörf á því í þeim til­vikum þar sem verið er að lýsa eftir fólki og það skiptir máli að lýs­ing á grun­uðum liggi fyrir,“ að því er segir í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Það er því hægt að taka saman upp­lýs­ingar þar sem grunur leikur á kyn­þátta­mörkun en í svari emb­ætt­is­ins segir að ekki sé „hægt að fara í slíka vinnu“.

[links]Athygli vakti þegar 16 ára drengur var stöðv­aður af lög­reglu í tvígang, dag eftir dag, vegna ábend­inga frá almenn­ingi um að hann væri stroku­fangi sem slapp úr haldi lög­regl­unnar um miðjan apríl. Dreng­ur­inn er dökkur á hör­und og með svip­aða hár­greiðslu og umræddur stroku­fangi.

Lögregla hafði fyrst afskipti af drengnum í strætó og dag­inn eftir í bak­aríi. Móðir drengs­ins var með honum í seinna skiptið og sagði hún í sam­tali við Kjarnann að atvikið hefði verið nið­ur­lægj­andi og að ekki væri um neitt annað að ræða en for­dóma.

Dreng­ur­inn var sjálfur með ósk sem hann vildi koma á fram­færi eftir að lög­regla hafði í tvígang afskipti af honum. „Ég væri til í að geta stigið út úr mínu eigin húsi og vera með vinum mínum án þess að lög­reglan stoppi mig fyrir það hvernig ég lít út.“

Ríkislögreglustjóri ætlar að eiga samtal við samfélagið um fordóma

Móðirin fund­aði með Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra í kjöl­farið og í yfir­lýs­ingu sem rík­is­lög­reglu­stjóri sendi frá sér eftir fund­inn sagði að í sam­tal­inu hefðu komið fram mik­il­vægar áherslur sem rík­is­lög­reglu­stjóri ætli að bregð­ast við, meðal ann­ars með því að eiga sam­tal við sam­fé­lagið um for­dóma.

Sigríður Björk sat fyrir svörum á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar í maí vegna atviks­ins. Þar full­yrti hún að ekki hafi verið um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu að ræða í til­felli dreng­ins. „Við erum að fylgja eftir ábend­ingum frá almenn­ingi. Þannig að í þessu til­viki á ekki við að það sé kyn­þátt­miðuð lög­gæsla. Þetta er ein­fald­lega þannig að við erum að leita að hættu­legum manni, það koma ábend­ingar og við þurfum að fylgja þeim eft­ir. Við getum ekki valið úr að fylgja þeim ekki eftir vegna eðlis verk­efn­is­ins,“ sagði Sigríður Björk meðal ann­ars á fund­inum.

Samkvæmt skil­grein­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra er um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu eða kyn­þátta­mark­aða lög­gæslu að ræða þegar grunur lög­reglu um afbrota­hegðun ein­stak­lings byggir ein­göngu á húð­lit og/eða kyn­þætti. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans ítrekar emb­ættið að svo hafi ekki verið í til­viki drengs­ins þar sem lög­regla hafi verið að fylgja eftir vís­bend­ingum almennra borg­ara sem töldu dreng­inn líkj­ast mann­inum sem lýst var eftir.

Til skoðunar að endurskoða flokkun mála hjá nefnd um eftirlit með lögreglu

Líkt og fyrr segir heldur lög­regla ekki utan um fjölda mála þar sem um er að ræða kyn­þátta­mörkun. Embættið vísar hins vegar á nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu en henni ber­ast upp­lýs­ingar frá öllum lög­reglu­emb­ættum um kvart­anir og kærur á hendur starfs­fólki lög­reglu.

Í svari frá nefnd­inni við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að nefndin hafi ekki flokkað mál sér­stak­lega eftir kyn­þátta­mið­aðri lög­gæslu og muni ekki eftir því að kvörtun hafi borist á síð­ustu árum sem falli undir kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu. Hins vegar hafi nokkrum sinnum verið kvartað undan kyn­þátta­for­dómum lög­reglu­manna. Til skoð­unar er að end­ur­skoða flokkun nefnd­ar­innar á málum hennar.

Um 100 lögreglumenn lokið námskeiði um fjölbreytileika

Sigríður Björk sagði á fundi alls­herj­ar­nefndar- og mennta­mála­nefndar að lög­reglan verði að vera vak­andi fyrir kyn­þátta­mið­aðri lög­gæslu.

Í svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvernig fræðslu sé háttað um kyn­þátta­mörkun og kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu kemur fram að í lög­reglu­fræði við Háskól­ann á Akureyri sé í boði nám­skeið um fjöl­breyti­leika og lög­gæslu sem er opið verð­andi og starf­andi lög­reglu­mönnum.

Þá hefur fram­hald af þessu nám­skeiði verið í boði fyrir starfs­fólk lög­regl­unnar hjá mennta- og starfs­þró­un­ar­setri lög­reglu. Rúmlega hund­rað lög­reglu­menn hafa sótt slíkt nám­skeið á síð­ustu fimm árum. Auk þess hefur dr. Eyrún Eyþórs­dóttir þróað náms­þátt um fjöl­breyti­leika og lög­gæslu í námi sem er ætlað milli­stjórn­endum í lög­gæslu.

„Í sam­ræmi við lög­gæslu­á­ætlun hefur verið lögð áhersla á að þróa síþjálfun lög­reglu (árleg skyldu­þjálfun) yfir í víð­ari svið en hefur verið hingað til, þar á meðal þjón­ustu við fjöl­breytt sam­fé­lag og menn­ing­ar­næmi,“ segir í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynþáttamörkun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár