Mál 16 ára drengs enn hjá eftirlitsnefnd fimm mánuðum eftir að atvikin áttu sér stað

„Mis­skiln­ingur“ olli því að mál 16 ára drengs rataði ekki til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu fyrr en tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað. Málið hefur nú verið hjá nefnd­inni í tæpa þrjá mán­uði, sem „vinnur að úrlausn“.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri taldi mál 16 ára drengs í tvígang vera til skoðunar hjá nefnd um eftirlit með lögreglu þegar svo reyndist ekki vera. Málið komst loks til nefndarinnar í júní, tveimur mánuðum eftir að atvikin áttu sér stað.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri taldi mál 16 ára drengs í tvígang vera til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu þegar svo reynd­ist ekki vera. Málið komst loks til nefnd­ar­innar í júní, tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað. Mynd: Bára Huld Beck

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu „vinnur að úrlausn“ atviks sem átti sér stað í apríl, þegar lög­regla fylgdi í tvígang eftir ábend­ingu sem sneri að stroku­fanga sem lög­regla leit­aði að. Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri taldi að málið hefði borist nefnd­inni strax í apríl en vegna mis­skiln­ings barst kvörtun vegna máls­ins ekki fyrr en 22. júní, tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað.

Málið sem um ræðir snýr að störfum og verk­lagi lög­reglu sem var að bregð­ast við ábend­ingum tengdum tví­tugum karl­manni sem slapp úr haldi lög­reglu við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í lok apr­íl. Í tvígang, á jafn mörgum dög­um, brást lög­regla við ábend­ingum þar sem reynd­ist svo ekki um að ræða stroku­fang­ann heldur sextán ára dreng. Dreng­ur­inn er dökkur á hör­und líkt og stroku­fang­inn og með svip­aða hár­greiðslu.

[adspot]Atvikin ýfðu upp umræðu um kyn­þátta­mörkun (e. racial profil­ing) og sat rík­is­lög­reglu­stjóri fyrir svörum á opnum fundi alls­herj­­­­­ar- og mennta­­­mála­­­nefndar í maí þar sem hún ræddi verk­lag lög­­­­­reglu í mál­inu sem og fræðslu og menntun lög­­­­­reglu­­­manna um fjöl­­­menn­ingu og for­­­dóma. Á fund­inum sagði hún að ekki hafi verið um kyn­þátta­mið­aða lög­­­­­gæslu að ræða til­­­­­felli 16 ára drengs­ins.

Ríkislögreglustjóri taldi málið komið til eftirlitsnefndar í maí

Á fund­inum greindi rík­is­lög­reglu­stjóri einnig frá því að málið væri til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu. Svo reynd­ist ekki vera og lét full­trúi nefnd­ar­innar emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra vita. Engin kvörtun hafði þá borist til nefnd­ar­innar vegna máls­ins líkt og rík­is­lög­reglu­stjóri taldi.

[links]Á þessum tíma­punkti, í lok maí, var nefndin enn að skoða hvort rétt væri að taka málið upp að eigin frum­kvæði. Nefndin komst stuttu síðar að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri ástæða til þess að svo stöddu. Svo virð­ist sem þeim skila­boðum hafi ekki verið komið til rík­is­lög­reglu­stjóra, sem full­yrti í við­tali við Kjarn­ann í júní að málið væri til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu.

„Við erum ekki rétta fólkið til að meta okk­­­ur. Það er eng­inn þar. Málið er komið til nefndar um eft­ir­lit með lög­­­­­reglu sem mun leggja óháð mat á þetta mál og afskipti lög­­­­­reglu,“ segir Sig­ríður Björk meðal ann­ars í við­tal­inu.

Nefndin taldi ekki ástæðu til að taka málið upp að eigin frumkvæði

Það sem rík­is­lög­reglutjóri vissi ekki var að í lok maí komst nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri rétt að taka málið upp að eigin frum­kvæði. Engin kvörtun hafði borist og því var málið ekki tekið til umfjöll­unar.

Eftir við­tal Kjarnans við rík­is­lög­reglu­stjóra, sem birt­ist 18. júní, spurð­ist blaða­maður fyrir hjá nefnd­inni um hvenær von væri á nið­ur­stöðu á óháðu mati nefnd­ar­innar. Þá feng­ust þau svör að engin kvörtun hefði borist vegna máls­ins og það væri því ekki til með­ferðar hjá nefnd­inni.

Full­trúi nefnd­ar­innar hafði í kjöl­farið sam­band við emb­ætt­i rík­is­lög­reglu­stjóra. Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu ber ekki að upp­lýsa rík­is­lög­reglu­stjóra um hvaða mál koma inn á borð til henn­ar og í þessu til­viki láð­ist emb­ætti rík­is­lög­regl­stjóra að upp­lýsa nefnd­ina um kvörtun vegna máls­ins og framsendi henni erindið þegar upp komst um það. Í svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði að mis­kiln­ings hafi gætt meðal starfs­manna um að „máls­að­ili sjálfur ætl­aði að leita til nefnd­ar­inn­ar, en það var ekki gert.“ Málið komst því ekki form­lega á borð nefnd­ar­innar fyrr en emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sendi nefnd­inni form­legt erindi í lok júní.

Liggur ekki fyrir hvenær vinnu nefndarinnar lýkur

Nokkurs mis­skiln­ings hefur því gætt í mál­inu en það komst loks á borð nefnd­ar­innar 22. júní, rétt tæp­lega tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað. Rík­is­lög­reglu­stjóri hélt, í tvígang, að málið væri komið til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu, en svo reynd­ist ekki vera. Úr því var bætt og hefur málið verið hjá nefnd­inni í tæpa þrjá mán­uði.

Unnið er að úrlausn máls­ins sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­fræð­ingi hjá nefnd­inni en „ekki er hægt að gefa frek­ari upp­lýs­ingar um fram­vindu þess að svo stöddu.“ Ekki liggur fyrir hvenær vinnu nefnd­ar­innar lýkur, upp­lýs­inga- og gagna­öflun er enn í gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eftirlitsnefnd

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár